Back to the jobs page

Laust sumarstarf í skemmtilegum íbúðakjarna

Íbúðakjarninn Mururima 4 óskar eftir starfsfólki í stöðu stuðningsfulltrúa í fjölbreytt sumarstarf með skemmtilegu fólki. Um hlutastarf er að ræða.

Hlutastarf Íbúðakjarni Mururima 4 112
Apply

Íbúðakjarninn Mururima 4 óskar eftir starfsfólki í skemmtilegt og krefjandi sumarstarf með fólki með þroskaskerðingu og skildar raskanir. Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa.

Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og fá allir aðlögunartíma. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Íbúakjarninn Mururima 4 er sólahringsheimili og um er að ræða vaktavinnu dag-, kvöld- og helgarvaktir og viðkomandi þarf að geta unnið allar vaktir.

Apply