Aðstoðarforstöðumaður óskast í frístundaheimilið Eldflaugina
Leitað er að öflugum umsækjanda með reynslu af frístundastarfi í starf aðstoðarforstöðumanns í frístundaheimilinu Eldflauginni, sem þjónustar börn í 1.-4. bekk við Hlíðaskóla. Í skólanum er táknmálssvið fyrir döff börn. Æskilegt er að viðkomandi búi yfir grunnþekingu á íslensku táknmáli og geti nýtt það í samskiptum við börn og starfsólk.
Frístundamiðstöðin Tjörnin óskar eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf aðstoðarforstöðumanns í frístundaheimilinu Eldflauginni. Eldflaugin þjónustar börn í 1.-4. bekk Hlíðaskóla að loknum skóladegi og í skólafríum, en í skólanum er táknmálssvið og því eru allt í senn döff börn, foreldrar og starfsfólk í frístundaheimilinu Eldflauginni. Vegna þess er æskilegt að viðkomandi búi yfir grunnþekkingu á íslensku táknmáli og/eða sé viljugur til að sækja sér þá þekkingu til að nýta sér hana í starfinu.
Frístundaheimilið Eldflaugin tilheyrir frístundamiðstöðinni Tjörninni, en auk Eldflaugarinnar starfrækir Tjörnin frístundaheimilin Draumaland við Austurbæjarskóla, Frostheima fyrir börn úr 3. og 4. bekk Melaskóla, Grandaskóla og Vesturbæjarskóla, Halastjörnuna við Háteigsskóla, Selið við Melaskóla, Skýjaborgir við Vesturbæjarskóla og Undraland við Grandaskóla og eru þessi frístundaheimili í miklu faglegu samstarfi. Einnig starfrækir Tjörnin félagsmiðstöðvar fyrir börn í 5.-10. bekk við sömu skóla. Frístundamiðstöðin heyrir undir skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar og leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Markmið og tilgangur starfs
Að veita 6–9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímans eru höfð að leiðarljósi.
Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls. Bjóða skal upp á fjölbreytt viðfangsefni sem höfða til ólíkra barna með mismunandi áhugasvið og tryggja þeim öruggar aðstæður þannig að þeim líði vel í frístundaheimilinu.
Sjá skal til þess að öll börn njóti jafnræðis óháð uppruna, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum,stjórnmálaskoðunum, kynferði, kynhneigð, aldri, efnahag, ætterni, fötlun, heilsufari eða annarri stöðu.
Verkefni og ábyrgð
# Umsjón með daglegri starfsemi frístundaheimilisins í samvinnu við forstöðumann.
# Umsjón með faglegu innra starfi í samvinnu við forstöðumann.
# Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd frístundastarfsins í samráði við samstarfsfólk og þátttakendur í starfinu.
# Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra starfsmenn frístundamiðstöðvarinnar.
# Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
# Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
# Hlúir að táknmáli og gerir því hátt undir höfði í starfinu
# Þátttaka í þverfaglegu samstarfi í kringum börnin
# Staðgengill forstöðumanns.
Hæfniskröfur
# Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði
# Haldgóð reynsla af starfi með börnum
# Góð þekking á starfi frístundaheimila
# Fagleg vinnubrögð
# Þekking á íslensku táknmáli og döff samfélaginu og/eða vilji til að sækja sér þá þekkingu
# Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
# Hæfni í samskiptum og sveigjanleiki
# Skipulags- og stjórnunarhæfileikar
# Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta
Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
# Stytting vinnuvikunnar
# Sundkort
# Menningarkort
# Samgöngustyrkur
# Líkamsræktarstyrkur
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá og greinagerð.
Athygli umsækjenda er vakin á því að vegna sumarleyfa verður ekki unnið úr innsendum umsóknum fyrr en eftir verslunarmannahelgi.
Launakjör: Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.