Leikskólakennari
Viltu koma að vinna á faglegum og skemmtilegum vinnustað?
Starf á yngri barna deild frá haustinu 2026 eða eftir samkomulagi.
Leikskólakennari eða starfsmaður með menntun sem nýtist í starfi óskast til starfa á yngri barna deild í leikskólanum Hálsaskógi.
Hálsaskógur er Grænfánaleikskóli sem leggur áherslu á umhverfismennt ásamt því að efla félagsfærni í gegnum útinám þar sem börnin fá tækifæri til að njóta og upplifa. Hálsakógur er réttindaskóli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og leggjum við áherslu á lýðræðislega starfshætti ásamt því að kynna fyrir börnum og fjölskyldum mismunandi greinar Barnasáttmálans.
Við störfum eftir hugmyndafræði John Dewey, Mihaly Csikzentmihalyi um jákvæða sálfræði og eftir uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar.
Leikskólinn er í sífelldri þróun og mótun og óskum við eftir áhugasömum starfsmanni sem er tilbúinn í að taka þátt í að þróa starfið með okkur og vera hluti af okkar faglega og skemmtilega samfélagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samskvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
- Taka þátt í skipulagi starfs á deildinni undir stjórn deildastjóra.
- Foreldrasamstarf í samvinnu við deildastjóra.
Menntunar - og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara æskilegt.
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Góð íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálakvarðanum.
Laun eru samkvæmt samningi Sambandi íslenskra sveitafélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Fríðindi í starfi:
- Reykjavíkurkort (sund og menning)
- Árlegur heilsustyrkur eftir 6 mánuði í starfi
- Samgöngusamningur
- Vinnutímasamningur út frá leiðum um Betri vinnutíma.
Frekari upplýsingar um starfið gefur Bryndís Björk Eyþórsdóttir á netfanginu halsaskogur@reykjavik.is