Back to the jobs page

Íslenskuver - Húsaskóli

Laus staða kennara (ísatkennara) sem heldur utan um íslenskuver í Húsaskóla. Um er að ræða 100% starf skólaárið 2026 - 2027.

Fullt starf Húsaskóli 112
Apply

Húsaskóli í Grafarvogi er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Nemendur eru um 150 og starfsmenn um 30. Skólinn er teymiskennsluskóli og er er með hæfnimiðað verkefnanám þar sem flestar greinar eru samþættar. Hann hefur tileinkað sér aðferðir leiðsagnarnáms og Byrjendalæsis og áhersla er lögð á fjölbreytta og skapandi kennsluhætti, læsi, umhverfismennt og heilsueflingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda með íslensku sem annað tungumál (ÍSAT) í samráði við skólastjórnendur og viðkomandi teymi.
  • Þróa í samvinnu við samstarfsmenn famsækið og faglegt skólastarf með áherslu á fjölbreytta kennsluhætti.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans.

Hæfniskröfur

  • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Katrín Cýrusdóttir skólastjóri í síma 4116868 og í tölvupósti katrin.cyrusdottir@reykjavik.is

Apply