Deildarstjóri
Við í Álftaborg erum að leita að deildarstjóra í teymið okkar.
Álftaborg er 4 deilda leikskóli þar sem aðaláherslur eru; lífsleikni, Vináttuverkfeni Barnaheilla, sjálfbærni, fjölmenning og læsi. Einkunnarorð leikskólans eru; virðing, gleði og umhyggja. Lögð er áhersla á jákvæð og góð samskipti og samvinnu.
Starfslýsing
Stjórnun og skipulagning:
Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.
Uppeldi og menntun:
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
Foreldrasamvinna:
Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra.
Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga.
Annað:
Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.
Reynsla af stjórnun æskileg.
Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
Lipurð og hæfni í samskiptum.
Sjálfstæði og frumkvæði.
Reynsla af starfi í leikskólum nauðsynleg.
Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
Stytting vinnuviku
Sundkort og heilsustyrkur
Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
Samgöngustyrkur
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Starfið er laust frá 1. September, en einnig er hægt að hefja starf eftir samkomulagi.
Upplýsingar veita Anna Hjördís Ágústsdóttir leikskólastjóri í sími 4113171/6939833 og Harpa Brynjarsdóttir í síma 4113170/6648390. Netfang skólans er Alftaborg(hjá)Reykjavik.is