Sérkennslustjóri
Leikskólinn Bjartahlíð auglýsir stöðu sérkennslustjóra.
Leikskólinn Bjartahlíð auglýsir lausa stöðu sérkennslustjóra til að starfa í öflugum og samhentum starfsmannahópi. Bjartahlíð er sex deilda leikskóli með um 110 börn og auglýsir eftir deildarstjóra í fullt starf. Leikskólinn starfar í tveimur húsum að Grænuhlíð 24 og Stakkahlíð 19 og er ungbarnadeildirnar staðsettar í Stakkahlíð 19. Við leggjum áherslu á að virða tilfinningar og skoðanir hvers barns og efla með þeim samkennd, tillitssemi og umhyggju gagnvart öðrum.
Meginverkefni sérkennslustjóra
- Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, lögum um málefni fatlaðra, öðrum lögum er við eiga og aðalnámskrá leikskóla.
- Faglegur umsjónarmaður sérkennslu í leikskólanum og veitir ráðgjöf til annarra starfsmanna.
- Hefur yfirumsjón með gerð verkefna og ber ábyrgð á gerð einstaklingsnámskráa fyrir börn sem þess þurfa.
- Veita foreldrum/forráðamönnum barna, stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
- Þátttaka í stefnumörkun skólans ásamt stjórnunarteymi og öðru samstarfi.
Menntun og hæfniskröfur
- Leikskólakennara-, þroskaþjálfa- eða sálfræðimenntun.
- Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum.
- Jákvæðni, frumkvæði og samvinna.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Reynsla, áhugi og hæfni í starfi með börnum.
- Góðir skipulagshæfileikar
- Færni til að tjá sig í ræðu og riti
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar gefur Rakel Ólafsdóttir leikskólastjóri
rakel.olafsdottir@rvkskolar.is, s. 411-3601 og Jóhanna Ögmundsdóttir johanna.ogmundsdottir@reykjavik.is s:411-3603
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.