Back to the jobs page

Staða talmeinafræðings, ráðgjafa á sviði málþroska og læsis

Miðja máls og læsis, hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur, auglýsir laust til umsóknar 60% starf talmeinafræðings, ráðgjafa á sviði málþroska og læsis. Hlutverk Miðju máls og læsis er að veita ráðgjöf um þróun faglegra starfshátta í skóla- og frístundastarfi, skipuleggja starfsþróun fyrir starfsfólk og fræðslu fyrir foreldra. 

Hlutastarf Miðja máls og læsis 108
Apply

Miðja máls og læsis, á skrifstofu Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur, auglýsir laust til umsóknar 60% starf talmeinafræðings, ráðgjafa á sviði málþroska og læsis. Hlutverk Miðju máls og læsis er að veita ráðgjöf um þróun faglegra starfshátta og skipuleggja starfsþróun fyrir starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Auk þess að skipuleggja fræðslu fyrir foreldra. 

Undir skóla- og frístundasvið heyrir rekstur leikskóla, grunnskóla og frístundamiðstöðva Reykjavíkurborgar og skólahljómsveita. Næsti yfirmaður ráðgjafa er deildarstjóri Miðju máls og læsis.

Helstu verkefni og ábyrgð

Veita starfsfólki í leik- og grunnskólum stuðning við að þróa markviss vinnubrögð til að efla málþroska og læsi barna.

Skipuleggja og annast fræðslu fyrir starfsfólk um málþroska og læsi.

Skipuleggja og annast fræðslu fyrir foreldra í samstarfi við starfsfólk í leik- og grunnskólum.

Samstarf við starfsfólk í skóla- og frístundastarfi, fagskrifstofur á skrifstofu skóla- og frístundasviðs og skólaþjónustu miðstöðva í Reykjavík auk annarra sérfræðinga.

Hæfnikröfur

Háskólamenntun á framhaldsstigi í talmeinafræði.

Sérþekking á málþroska og læsi barna frá fæðingu til fullorðinsára.

Reynsla af starfi í leik-eða grunnskóla æskileg.

Reynsla af ráðgjöf í skóla- og frístundastarfi æskileg.

Leyfi til að nota starfsheitið kennari æskilegt.

Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

Frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð.

Umsókninni þarf að fylgja greinargerð í stuttu máli um þekkingu og reynslu af vinnu með málþroska og læsi, yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf kennara ef það á við, upplýsingar um framsækin verkefni sem umsækjandi hefur leitt eða tekið þátt í og annað er málið varðar.

Um er að ræða 60% starfshlutfall.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Kennarasamband Íslands eða BHM.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dröfn Rafnsdóttir, deildarstjóri Miðju máls og læsis í síma 411 7093 eða með pósti á netfangið: drofn.rafnsdottir@reykjavik.is

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Apply