Back to the jobs page

Vesturmiðstöð auglýsir eftir félagsráðgjafa í deild barna og fjölskyldna

Vesturmiðstöð óskar eftir metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með einlægan áhuga á þjónustu við börn og fjölskyldur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf fljótlega.

Fullt starf Börn og barnafjölskyldur - Vesturmiðstöð 101
Apply

Vesturmiðstöð er framsækinn vinnustaður sem býður upp á spennandi tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu á þjónustu við börn, fjölskyldur og skóla. Í boði er vinna í málefnum barna, skóla og fjölskyldna með metnaðarfullum hópi fagmanna eins og félagsráðgjöfum, kennsluráðgjöfum, sálfræðingum, hegðunarráðgjöfum og talmeinafræðingum. Starfið felur í sér þátttöku í sameiginlegu verkefni velferðarsviðs og skóla- og frístundasviðs, Betri borg fyrir börn. Markmið verkefnisins er að efla þjónustu við börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra og þétta samstarf skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Um fullt framtíðarstarf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Félagsleg ráðgjöf við börn, unglinga, foreldra og starfsfólks skóla.
  • Taka þátt í þróun þjónustu á deild barna og fjölskyldna
  • Þverfaglegt starf á þjónustumiðstöð og við samstarfsstofnanir (s.s. heilsugæslu, barnavernd o.fl.)
  • Þekking og reynsla í vinnslu og meðferð mála sem tengjast börnum og fjölskyldum.
  • Þekking og reynsla á sviði velferðarþjónustu æskileg.

Hæfniskröfur

  • Löggilding til að starfa sem félagsráðgjafi.
  • Viðeigandi þekking og reynsla á sviði félagsráðgjafar.
  • Þekking og reynsla af farsældarlögum og Betri borg fyrir börn er kostur.
  • PMTO meðferðarmenntun er kostur. 
  • Áhugi á þróun þjónustu félagsráðgjafar og þverfaglegs starfs.
  • Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, frumkvæði og leikni í mannlegum samskiptum.
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 (samkvæmt evrópska tungumálaramma).
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort Reykjavíkur
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkur
  • Aðgengi að stuðnings- og ráðgjafateymi borgarinnar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Félagsráðgjafafélags Íslands (FÍ). Nánari upplýsingar um starfið veitir Helgi Hjartarson í síma 411-1660 og tölvupósti helgi.hjartarson@reykjavik.is.

Apply