Back to the jobs page

Atferlisfræðingur, þroska - eða iðjuþjálfi - Grandaskóli

Grandaskóli óskar eftir atferlisfræðingi, þroska- eða iðjuþjálfa

Fullt starf Grandaskóli 107
Apply

Laust er til umsóknar starf atferlisfræðings, þroska- eða iðjuþjálfa við Grandaskóla. Starfshlutfall er samkomulagsatriði.

Löng starfslýsing

Laust er til umsóknar starf atferlisfræðings, þroska- eða iðjuþjálfa við Grandaskóla.

Grandaskóli er staðsettur í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 340 nemendur í 1. - 7. bekk og fjöldi starfsfólks er um 50.

Einkunnarorð skólans eru jákvæðni, ábyrgð, vellíðan, árangur. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð. Í 1. - 3. bekk er stuðst við Byrjendalæsi, sem er samvirk nálgun í læsiskennslu.

Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. 

Helstu verkefni

  • Hefur umsjón með skipulagningu og framkvæmd á sérhæfðri þjálfun nemenda á yngra og miðstigi ásamt því að veita samstarfsmönnum og foreldrum fræðslu og ráðgjöf. 
  • Annast þjálfun nemenda í samráði við aðstoðarskólastjóra, verkefnastjóra sérkennslu, sérkennara og aðra kennara. 
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki. 
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Hæfniskröfur

  • Þroskaþjálfamenntun og leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi.
  • Lipurð og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Reynsla þjálfun barna og ungmenna er æskileg.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu samfélagi fagfólks.
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi og frumkvæði.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið (ETM Sjálfsmatsrammi)

Hlunnindi í starfi

  • Menningar- og bókasafnskort.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort.
  • Heilsuræktarstyrkur.

Frekari upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar um starfi veitir Katrín Ásta Hafsteinsdóttir, skólastjóri (katrin.asta.hafsteinsdottir@reykjavik.is).

Apply