Back to the jobs page

Leikskólakennarar, Sæborg

Við leitum að fólki til að ganga til liðs við okkar frábæra hóp í leikskólanum Sæborg, 107 Reykjavík. Unnið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og áhersla lögð á skapandi starf með börnum, hæglæti og flæði í leik.

Íslenskukunnáttu á stigi B1, samkvæmt evrópska tungumálarammanum, er skilyrði.

Fullt starf Leikskólinn Sæborg 107
Apply

Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann Sæborg, Starhaga 11, 107 Reykjavík.  

Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa, er leitað eftir einstaklingum með aðra menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfið.

Unnið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og áhersla lögð á skapandi starf með börnum og flæði í leik. 

Sæborg er frábærlega staðsett í nálægð við Ægisíðuna og sjóinn.

Hlunnindi sem fylgja starfinu eru frítt fæði, sundkort, menningarkort og samgöngusamningur. Stöður er lausar frá ágúst eða eftir samkomulagi. Starfshlutfall er einnig umsemjanlegt.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð 

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu.
  • Kennara- eða uppeldismenntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
  • Lipurð í samskiptum.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður ásamt sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Íslenskukunnátta á stigi B1, samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð.

Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttafélags

Upplýsingar veitir Hafdís Svansdóttir, leikskólastjóri.  

Sími 411 3471, netfang: hafdis.svansdottir@reykjavik.is

og Inga Jóna Hilmisdóttir, aðstoðarleikskólastjóri

netfang: inga.jona.hilmisdottir@reykjavik.is

Apply