Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi l

Spennandi starf á íbúðakjarna. Fimm íbúar sem þurfa á þinni aðstoð að halda.

Unnið erftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.

Hlutastarf Íbúðakjarni Sporhömrum 5 112
Apply

Starfsmaður óskast til starfa í íbúðakjarna fyrir fólk með fötlun. Unnið á breytilegum vöktum: dag-, kvöld-,nætur- og helgarvaktir.

Um er að ræða stöðu stuðningsfulltrúa 1 í 90% starf.

Sporhamrar 5 er íbúðakjarni þar sem fimm einstaklingar með fötlun búa. Þar er veitt er sólarhringsþjónusta auk þess sem íbúðakjarninn sér um utankjarnaþjónustu við einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.

Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn. Þjónandi leiðsögn byggir á einstaklingsmiðaðri nálgun, þar sem samskipti milli starfsfólks og þjónustuþega eru þungamiðjan. Þjónustan miðar að því að efla færni, auka sjálfstæði og lífsgæði íbúa – og er markmiðið að veita ávallt framúrskarandi þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

-Einstaklingsmiðuð og sveigjanleg aðstoð við allar athafnir daglegs lífs

-Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum

-Hvetja og styðja til sjálfsstæðis og félagslegrar virkni

-Taka þátt í þróunarstarfi sem tekur mið af ákvörðunarstuðningi við íbúa

-Vera þátttakandi í teymisvinnu, þar sem þjónusta við íbúa er í fyrirrúmi

Hæfniskröfur

-Góð almenn menntun

-Þekking og reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum kostur

-Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf

-Stundvísi og heiðarleiki

-Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum

-Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti slilyrði

-Bilpróf skilyrði

-Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.

-Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Frekari upplýsingar um starfið

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurgeir Birgisson í síma 823-0109 eða sigurgeir.birgisson@reykjavik.is

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðeigandi stéttarfélags.

Apply