Back to the jobs page

Stuðningsfulltrúi í sérdeild fyrir einhverfa

VIð leitum að öflugum stuðningsfulltrúa til starfa í sérdeild fyrir einhverfa í Langholtsskóla skólaárið 2026-2027.  

Hlutastarf Langholtsskóli -Sérhæfðar deildir stuðf. 104
Apply

Langholtsskóli leitar að öflugum stuðningsfulltrúa til starfa í Dalnum skólaárið 2026-2027. Langholtsskóli er heildstæður grunnskóli með um 650 nemendur í 1.-10. bekk. Áhersla er lögð á jákvæðan skólabrag, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti og skapandi viðfangsefni þar sem komið er til móts við alla nemendur. Einkunnarorð Langholtsskóla eru virðing - vellíðan og skapandi skólastarf.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
  • Þarf að geta fylgt drengjum í búningsklefa í íþróttum og sundi. 
  • Íslenskukunnátta á stigi A2 eða ofar samkvæmt evrópska tungumálarammanum. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðstoðar nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
  • Fylgir drengjum í búningsklefa í sundi og íþróttum. 
  • Aðstoðar nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt skólanámsskrá/einstaklingsnámskrá undir leiðsögn kennara og deildarstjóra.
  • Styður nemendur í félagslegum samskiptum í skólastarfinu.

Nánari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 80% starf.

Starfið er tímabundið og laust frá 17. ágúst 2026.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við Sameyki, stéttarfélag.

Nánari upplýsingar gefa Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir skólastjóri, sigurlaug.hrund.svavarsdottir@reykjavik.is, og Sesselja Auður Eyjólfsdóttir aðstoðarskólastjóri, sesselja.audur.eyjolfsdottir@reykjavik.is.

Apply