Deildarstjóri í Ævintýraborg við Nauthólsveg
🌿 Deildarstjóri óskast í Ævintýraborg við Nauthólsveg
„Viltu starfa á stað þar sem vellíðan barna og starfsfólks er í forgrunni?“
Ævintýraborg við Nauthólsveg er 6 deilda leikskóli með 93 börnum. Í leikskólanum starfar samhentur og hlýr hópur sem leggur ríka áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnum.
Leikskólinn er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem Öskjuhlíð og Nauthólsvík eru hluti af okkar daglega uppeldis- og námsumhverfi.
Gildi leikskólans eru: Virðing - Vinátta - Vellíðan
Við trúum því að börn læri best í gegnum leik, forvitni og tengsl og að starfsfólk sem fær að njóta sín skapi bestu aðstæðurnar fyrir börnin.
Helstu áherslur okkar eru útinám, læsi, félagsleg færni og nám í gegnum leik þar sem forvitni og vellíðan barna er í fyrirrúmi.
Nú leitum við að öflugum og metnaðarfullum deildarstjóra sem vill taka þátt í þessu ævintýri með okkur.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
- Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans.
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
- Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
- Ber ábyrgð á innra mati deildar.
- Ber ábyrgð á samstarfi við foreldra og aðra fagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Reynsla af starfi á leikskólastigi
- Frumkvæði og metnaður í starfi.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta og ritfærni (B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
- Góð tölvukunnátta.
- Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi:
- Forgangur í leikskóla og afslátt af dvalargjaldi.
- Menningarkort: sund, söfn, bókasöfn.
- Heilsuræktarstyrk.
- Samgöngustyrk
- 36 stunda vinnuviku fyrir fullt starf
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. Lög nr. 95/2019
Nánari upplýsingar:
Upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Anna Metta Norðdahl
📧anna.metta.norddahl@reykjavik.is
📞411-6760
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum.