Leikskólakennari/leiðbeinandi
Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast í leikskólann Ævintýraborg við Eggertsgötu.
Laust er til umsóknar starf í Ævintýraborg við Eggertsgötu, sem er 5 deilda leikskóli með 85 börn á aldrinum 1-6 ára. Unnið er í anda Reggio Emilia hugmyndafræðinnar og lögð mikil áhersla á vellíðan og virðingu. Frábær starfsmannahópur og metnaðarfull verkefni í gangi.
Starfið er laust nú þegar. Vek samt athygli á því að leikskólinn er lokaður 4 vikur í júlí.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna
- Lægri leikskólagjöld í Reykjavík fyrir starfsmenn
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
- Hádegismatur
Nánar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi sambands íslenskra Sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Petrína Pétursdóttir leikskólastjóri á netfanginu kristin.petrina.petursdottir@reykjavik.is