Back to the jobs page

Ráðgjafi í málefnum fullorðins fatlaðs fólks

Skrifstofa málefna fatlaðs fólks leitar að áhugasömum og öflugum ráðgjafa í 100% starf í málefnum fullorðins fatlaðs fólk. Um er að ræða tvær stöður, tímabundna og ótímabundna.  

Fullt starf Skrifstofa málefna fatlaðs fólks 105
Apply

Meginhlutverk ráðgjafa snýr að ráðgjöf og þjónustu við fullorðið fatlað fólk með áherslu á geðrænar áskoranir, þverfaglegt starf við ólíkar fagstéttir og aðra hlutaðeigandi. Verkefnin taka til almennrar og sértækrar félags- og velferðarþjónustu.

Skrifstofa málefna fatlaðs fólks er framsækinn vinnustaður sem býður upp á tækifæri til þess að byggja upp og efla þjónustu við fatlað fólk. Öflugur og metnaðarfullur hópur fagfólks starfar á skrifstofunni þar sem áhersla er lögð á þverfaglegt samstarf. 

Boðið er upp á samgöngusamning, heilsuræktarstyrk, sundkort í sundlaugar Reykjavíkurborgar og menningarkort. 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Víðtæk ráðgjöf og þjónusta við fatlað fólk og aðstandendur þeirra.
  • Málstjórn og vinnsla einstaklingsmála. 
  • Ráðgjöf, stuðningur og umsjón varðandi gerð og eftirfylgd einstaklingsbundinna þjónustuáætlana. 
  • Fræðsla og leiðbeiningar um málaflokkinn. 
  • Þátttaka í fagteymum og þverfaglegu samstarfi, m.a. tengt þróun þjónustu við fatlað fólk.
  • Þátttaka í eflingu notendasamráðs.
  • Framkvæmd grunn- og sjálfsmats í samráði við notanda.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun á sviði mennta-, félags- eða heilbrigðisvísinda.
  • Umfangsmikil þekking og reynsla af ráðgjöf, þjónustu og notendasamráði við fullorðið fatlað fólk, með áherslu á geðrænar áskoranir.
  • Framúrskarandi samskiptafærni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði, sveigjanleiki og lausnamiðuð nálgun.
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér nýjungar rafrænna lausna.
  • Góð íslenskukunnátta. B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Fríðindi í starfi

  • Samgöngustyrkur.
  • Heilsustyrkur.
  • Menningarkort Reykjavíkur.
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkur.
  • 36 klukkustunda vinnuvika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Ragnarsdóttir með því að senda fyrirspurnir á netfangið ragna.ragnarsdottir@reykjavik.is.

Apply