Back to the jobs page

Skólaíþróttir-Engjaskóli

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólaíþróttum og er tilbúin að taka þátt í skólaþróun. 

Hlutastarf Engjaskóli 112
Apply

Engjaskóli er grunnskóli í norðanverðum Grafarvogi og er fyrir nemendur í 1. -7. bekk.

Hlutverk Engjaskóla er að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi nám, stuðla að alhliða þroska allra nemenda, að mennta ábyrga og hæfa þjóðfélagsþegna með það að markmiði að þeir verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar sem geta tekið virkan þátt í þróun samfélagsins og stundað frekara nám.

Áhersla er á leiðsagnarnám og teymisvinnu starfsfólks. Skólinn leggur einnig áherslu á heilsueflingu, umhverfismennt og nýsköpun.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu í skólaíþróttum í samráði við skólastjórnendur.
  • Vinna að þróun skólastarfs með teymi, stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu.
  • Önnur verkefni skv. Starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.

Menntunar og hæfniskröfur kennara

  • Leyfisbréf kennara með skólaíþróttir sem sérgrein.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á skólaþróun.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Kennslureynsla í skólaíþróttum æskileg.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði, hvort sem er talað mál eða ritað a.m.k. C1 í evrópska tungumálarammanum.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.

Hlunnindi í starfi

Menningar- og bókasafnskort.

Samgöngustyrkur.

Sundkort í sundlaugar Reykjavíkurborgar.

Heilsuræktarstyrkur.

Frekari upplýsingar um starfið

Starfshlutfall 80%

Ráðningarform: ótímabundin ráðning

Laun eru samkvæmt samningi Samband íslenskra sveitafélaga og KÍ v/FG

Umsókninni skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari auk annarra gagna er málið varðar

Nánari upplýsingar um starfið veitir Álfheiður Einarsdóttir skólastjóri í síma 411 7750 eða með því að senda fyrirspurn á alfheidur.einarsdottir@reykjavik.is

Apply