Dönsku- og listgreinakennari - Laugalækjarskóli
Laugalækjarskóli vill ráða til sín kennara sem getur kennt dönsku og list- og verkgreinar. Leitað er að einstaklingi sem hefur óbilandi trú á unglingum, áhuga á menntun þeirra og velferð og er tilbúinn til að taka þátt í að þróa metnaðarfullt skólastarf í kringum fjölbreyttan nemendahóp.
Laugalækjarskóli er annar af hverfisskólum Laugarneshverfis, stofnaður árið 1960. Í skólanum eru um 420 nemendur í 7. – 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, eldmóður og gleði. Stöðugt er stefnt að því að byggja upp öfluga, ábyrga og sjálfstæða einstaklinga. Þannig er skólinn réttindaskóli UNICEF, hefur hlotið regnbogavottun og vinnur einnig eftir hugmyndafræðinni um jákvæðan aga. Í kennsluskipulagi má finna ríka áherslu á þverfaglega verkefnavinnu, upplýsingatækni, námsmöppur nemenda og markvissa ígrundun þeirra um eigið nám, samþættingu námsgreina, öfluga lífsleiknikennslu og öfluga stuðningskennslu. Skólinn býr að ríkum umbótavilja og hefð hefur skapast fyrir lýðræðislegri skólaþróun og samvirkri forystu starfsmanna.
Félagsmiðstöðin Laugó er staðsett í húsnæði skólans og vinnur með skólanum að félagsstarfi barna og unglinga í Laugarneshverfi. Þá starfa Skólahljómsveit Austurbæjar og Frístundamiðstöðin Hof einnig í húsnæði Laugalækjarskóla. Um árabil hefur skólinn átt gott samstarf við Háskóla Íslands og Háskólann í Þrándheimi um menntun og þjálfun kennaranema.
Helstu verkefni:
- Dönskukennsla unglinga um 70%.
- List- og verkgreinakennsla um 30%
- Umsjón með nemendahópi.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk.
- Samskipti við foreldra.
- Virk þátttaka í þróun skólastarfsins með samstarfsfólki.
Hæfniskröfur:
- Leyfisbréf til kennslu með sértæka hæfni á grunn- eða framhaldsskólastigi.
- Afar gott vald á danskri tungu, kostur að hafa búið í Danmörku.
- Góð hæfni til list- og verkgreinakennslu.
- Reynsla og áhugi á að kenna unglingum og starfa með þeim.
- Leikni í samskiptum, samstarfi og sveigjanleiki í starfi.
- Gott frumkvæði og löngun til þess að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Reynsla af kennslu annarra námsgreina eða af samþættingu námsgreina er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2026.
Umsókn fylgi leyfisbréf, ferilskrá og annað er málið varðar.
Laun eru samkvæmt kjarasamnigi FG og SNS. Umsækjendur eru beðnir að sækja um starfið á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf. Nánari upplýsingar veita Jón Páll Haraldsson skólastjóri (jon.pall.haraldsson@reykjavik.is) og Sólveig Hrafnsdóttir aðstoðarskólastjóri (solveig.hrafnsdottir@reykjavik.is), sími 411 7900.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.