Staða deildastjóra er laus á Klömbrum
Nú er gefst tækifæri til að vinna með frábæru starfsfólki. Staða deildastjóra var að losna hjá okkur í Klömbum
Deildastjóri óskast á leikskólann Klambra.
Klambrar er 6 deilda leikskóli í hjarta borgarinnar sem er staðsettur við hliðina á Háteigskirkju.
Börnin eru á aldrinum 1 til 6 ára. Einkunnaorð skólans eru Vinátta-Gleði- Sköpun.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimsíðu okkar www.klambrar.is
Gott er að viðkomandi geti hafið störf 7. ágúst eða eftir samkomulagi.
Að vinna með börnum er skapandi þar sem hver og einn hefur fjölmörg tækifæri til að flétta styrkleika sína og áhugamál inn í verkefnin í skólanum. Það sem þú hefur fram að færa getur verið einstakt framlag inn í starfið og reynsluheim bæði barnanna og samstarfsfólks.
Í leikskólunum er lögð er áhersla á að skapa áhugavert og hvetjandi vinnuumhverfi, að allir starfsmenn fái að njóta sín og starfið veiti góða reynslu fyrir fólk sem hefur áhuga á samskiptum, uppeldi og skapandi starfi og í starfi. Börnin eru á aldrinum 1 – 6 ára og læra að mestu í gegnum leik.
Kennarar með leyfisbréf hafa forgang í störf í leikskólum, en þar sem barnahópurinn hefur farið ört stækkandi er þörf fyrir fleiri öfluga starfsmenn. Einstaklingar með annan dýrmætan bakgrunn og reynslu og eru því hvattir til að sækja um.
Hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun/önnur dýrmæt menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
Hreynt sakavottorð
Áhugi á starfi með ungum börnum
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Góð íslenskukunnátta. Miðað er við tungumálaviðmið C2 í íslensku.
(sjá, Samevrópski matsramminn fyrir tungumál)
Fríðindi í starfi
Heilsuræktarstyrkur
Sundkort
Menningarkort
Bókasafnskort
Samgöngustyrkur
36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
Laun er samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Haft verður samband við þig ef þú kemur til greina og þér boðið að koma í viðtal.
Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins að fengnu upplýstu samþykki umsækjanda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.
Frekar upplýsingar um starfið veitir Anna Björk Marteinsdóttir, leikskólastjóri í tölvupósti Anna.Bjork.Marteinsdottir@reykjavik.is eða klambrar@reykjavik.is
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.