Back to the jobs page

Laus er til umsóknar staða skólastjóra Norðlingaskóla

Laus er til umsóknar staða skólastjóra Norðlingaskóla

 

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Reykjavík, þ.e. í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf og starfsmenn um 90. 

Fullt starf Norðlingaskóli 110
Apply

Laus er til umsóknar staða skólastjóra Norðlingaskóla

Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 500 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Reykjavík, þ.e. í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf og starfsmenn um 90.

Í Norðlingaskóla er áhersla m.a. á teymiskennslu, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks. Norðlingaskóli hefur verið leiðandi í að nýta náttúru og umhverfi skólans í námi barna og er hjarta samfélagsins. Áhersla er lögð á samráð við heimili, meðal annars með skólaboðunardegi á haustin.

Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.

Á grundvelli samþykktar fyrir skóla- og frístundaráð ræður sviðsstjóri í starf skólastjóra og kjör miðast við kjarasamning KÍ v./skólastjórafélags Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stýra rekstri og daglegri starfsemi skólans, þar á meðal fjárreiðum, áætlanagerð og eftirfylgni.

Bera ábyrgð á og vinna að faglegri þróun skólans og vinna samkvæmt stefnu skólans innan ramma laga og reglugerða og í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla og stefnumótun Reykjavíkurborgar.

Standa vörð um farsæld, velferð og nám nemenda.

Styðja starfsfólk, ýta undir góðan starfsanda og efla faglegt lærdómssamfélag.

Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.

Leiða stjórnunarteymi skólans og bera ábyrgð á sýn og stefnu skólans og frístundar í samvinnu við starfsfólk og nemendur.

Tryggja virkt og farsælt samstarf við foreldra, foreldrafélög, félagsmiðstöðvar, íþrótta- og menningarstarf, skólaþjónustu og aðra ytri hagaðila sem deila ábyrgð á velferð barna.

Hæfniskröfur:

Leyfisbréf sem kennari.

Grunnskólakennaramenntun er æskileg.

Framhaldsnám og reynsla af stjórnun í grunnskóla æskileg.

Þekking og reynsla af kennslu og skólastarfi á grunnskólastigi.

Farsæl stjórnunareynsla.

Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar.

Reynsla og áhugi á að starfa í hvetjandi og árangursríku skólasamfélagi.

Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.

Lipurð og hæfni í samskiptum.

Faglegur metnaður, sjálfstæði og frumkvæði.

Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar

Umsókn skal fylgja ferilskrá með yfirliti yfir nám, fyrri störf og farsæl verkefni sem umsækjandi hefur leitt og upplýsingar um umsagnaraðila.

Kynnisbréf ásamt greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið.

Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst 2026. Frekari upplýsingar um starfið veitir Bára Birgisdóttir fagstjóri grunnskóla á Austurmiðstöð bara.birgisdottir@reykjavik.is   

Apply