Leikskólakennari í Brákarborg
Við leitum eftir leikskólakennara í nýja glæsilega húsnæðið okkar að Kleppsvegi 150-152 en þangað flytjum við á næstunni en fram að því eru við í nágrenninu í Brákarsundi 1.
Við leggjum áherslu á sjálfstæði barna og starfsfólks og vinnum með jákvæðan aga þar sem LAUSNAHRINGURINN er okkar aðal verkfæri. Unnið er eftir hugmyndafræði Caroline Pratt með einingakubba og John Dewey með áherslu á að læra af reynslunni.
Brákarborg er Hinseginvænn starfsstaður sem hefur hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar og þar er fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum fagnað.
Einkunnarorð Brákarborgar eru:
AGI - VIRÐING - UMHYGGJA
Fríðindi í starfi:
- Menningarkort – bókasafnskort
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf með möguleikann á að safna fyrir t.d. jólafrí, páskafrí og vetrarfrí
- Heilsuræktarstyrkur
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna skv. starfslýsingu leikskólakennara.
- Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
- Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
- Samskipti og samvinna við foreldra.
- Sinna öðrum verkefnum sem deildarstjóri og leikskólastjóri felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum er mikilvæg
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Færni til að nýta sér tölvur í starfi
- Góð íslenskukunnátta (a.m.k. B2 skv. evrópska tungumálarammanum)
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi séttarfélags.
Forsenda ráðningar er að aflað sé upplýsinga frá Sakaskrá ríkisins að fengnu upplýsu samþykki umsækjenda í því skyni að uppfylla skilyrði laga og ráðningaraðila fyrir ráðningu í starf.
Starfið er laust frá 5. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sólrún Óskarsdóttir skólastjóri eða María Björnsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 411-3120 og í tölvupósti brakarborg@reykjavik.isVið