Enskukennsla á unglingastigi
Kennari í ensku á unglingastigi - Háteigsskóli
Háteigsskóli óskar eftir að ráða kennara í ensku á unglingastigi fyrir skólaárið 2026-2027.
Háteigsskóli er heildstæður grunnskóli með um 510 nemendur, staðsettur á horni Háteigsvegar og Bólstaðarhlíðar. Í Háteigsskóla er metnaðarfullt skólastarf sem einkennist af framþróun í þágu náms fyrir alla með virðingu fyrir fjölbreytileika, mismunandi þörfum, hæfileikum og einkennum sérhvers nemanda í fyrirrúmi. Samskiptafærni og líðan allra í skólasamfélaginu eru í öndvegi ásamt því að efla seiglu og trú á eigin getu. Skólastarfið byggir á menntastefnu Reyjavíkurborgar, leiðsagnarnámi og teymiskennslu þar sem sameiginleg ábyrgð kennara er á sérhverjum nemendahópi.
Háteigsskóli leggur ennfremur áherslu á góðan starfsanda og hefur skólinn hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarstofnun síðastliðin þrjú ár í röð í vali á stofnun ársins. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana en hún nær til um 35.000 manns á opinberum vinnumarkaði. Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og verðlauna vinnustaði sem ná framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs.
Einkunnarorð skólans eru virðing, samvinna og vellíðan.
Um er að ræða 100% stöðu tímabundið með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Staðan er laus frá 1. ágúst 2026 og er til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla nemenda í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Hæfniskröfur
- Kennaramenntun áskilin.
- Áhugi á að starfa með börnum.
- Góð þekking á leiðsagnarnámi.
- Reynsla og menntun sem nýtist í enskukennslu.
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði.
- Framúrskarandi íslenskukunnátta.
- Góð færni í upplýsingatækni og námsmati í Mentor.
- Teymishugsun.
Frekari upplýsingar um starfið.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitafélaga og KÍ.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðrún Helga Sigfúsdóttir skólastjóri í síma 4116870 eða í tölvupósti gudrun.helga.n.sigfusdottir@reykjavik.is