Back to the jobs page

Deildarstjóri í leikskólann Suðurborg

Leikskólakennari óskast í starf deildarstjóra í Suðurborg

Fullt starf Leikskólinn Suðurborg 111
Apply

Leikskólakennari óskast í 100% starf deildarstjóra í leikskólanum Suðurborg í Suðurhólum 19, 111 Reykjavík.

Suðurborg er 6 deilda leikskóli og þar dvelja 106 börn. 

Við leitum að skapandi og áhugasömu fólki með leikskólakennaramenntun, reynslu og þekkingu til að vinna með ungum börnum. Starfið í leikskólanum Suðurborg er fjölbreytt og skemmtilegt og enginn dagur er eins en á hverjum degi getum við sameinast um að leggja dýrmætan grunn að þekkingu og þroska barna. Mikil þróun er í starfi með börnunum þar sem mikil og góð samvinna er á milli deilda. Um er að ræða starf á deild þar sem 3-4/5 ára börn dvelja.

Í leikskólanum er lögð áhersla á stuðning við jákvæða hegðun, sterka félagsfærni og að efla mál og læsi. Leikskólinn er auk þess sérhæfður leikskóli fyrir börn með einhverfu þar sem áherslan er á atferlisíhlutun.

Starfið er laust frá 11. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Rún Gylfadóttir í síma 411-3220 og tölvupósti anna.run.gylfadottir@reykjavik.is eða sudurborg@reykjavik.is

Helstu verkefni og ábyrgð

· Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt lögum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, stefnu og skipulagi.

· Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans á deildinni.

· Annast daglega verkstjórn á deild, skipulagningu, framkvæmd og mati deildarstarfs.

· Ber ábyrgð á upplýsingagjöf og samvinnu við foreldra.

· Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.

· Er í stjórnendateymi leikskólans og tekur þátt í gerð skólanámskrár, starfsáætlunar og þróunarverkefnum.

Menntunar- og hæfniskröfur

· Leyfisbréf leikskólakennara/kennara

· Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.

· Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.

· Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.

· Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

· Tölvukunnátta.

  Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

· Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.

Fríðindi í starfi

· 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf.

· Menningarkort – bókasafnskort

· Heilsuræktarstyrkur

· Samgöngustyrkur

· Sundkort

Apply