Back to the jobs page

Kennari í textílmennt

Óskað er eftir kennara í textílmennt við Grandaskóla. 

Um tímabundna ráðningu er að ræða með möguleika á framlengingu. 

Starfshlutfall 60-80%.

Fullt starf Grandaskóli 107
Apply

Laust er til umsóknar starf kennara í textílmennt við Grandaskóla.

Löng starfslýsing

Laust er til umsóknar starf kennara í textílmennt við Grandaskóla.

Grandaskóli er staðsettur í Vesturbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 340 nemendur í 1. - 7. bekk og fjöldi starfsfólks er um 50.

Einkunnarorð skólans eru jákvæðni, ábyrgð, vellíðan, árangur. Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu og sameiginlega ábyrgð. Í 1. - 3. bekk er stuðst við Byrjendalæsi, sem er samvirk nálgun í læsiskennslu.

Við skólann starfar öflugt foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Um er að ræða 80-100% starf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Annast kennslu nemenda í samráði við aðra kennara og skólastjórnendur.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi og samráði við foreldra og annað fagfólk.

Helstu áherslur skólaársins 2026-2027

  • Innleiðing nýrra mats- og hæfniviðmiða Aðalnámskrár grunnskóla.
  • HugSmiðjan - þróunarverkefni í samstarfi við Rimaskóla, Mixtúru, HÍ o.fl. HugSmiðjan leggur áherslu á læsi, nýsköpun, þátttöku og virkni nemenda.
  • Innleiðing á Verkfærakistu grunnskólanna í 1. - 7. bekk.
  • Leiðsagnarnám.

Hæfniskröfur

  • Kennaramenntun og leyfisbréf kennara (leyfisbréf fylgi umsókn).
  • Lipurð og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
  • Reynsla af kennslu barna og ungmenna er æskileg.
  • Reynsla og áhugi á að vinna með börnum.
  • Vilji og hæfni til að starfa í teymi.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu samfélagi fagfólks.
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi og frumkvæði.
  • Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum matskvarða um tungumálaviðmið (ETM Sjálfsmatsrammi)

Hlunnindi í starfi

  • Menningar- og bókasafnskort.
  • Samgöngustyrkur.
  • Sundkort.
  • Heilsuræktarstyrkur.

Frekari upplýsingar um starfið

  • Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Nánari upplýsingar um starfi veita Katrín Ásta Hafsteinsdóttir, skólastjóri (katrin.asta.hafsteinsdottir@reykjavik.is) eða í síma 411 7120.
Apply