Vogaskóli - stuðningsfulltrúi
Vogaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa fyrir næsta skólaár
Vogaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 70 - 75% starf skólaárið 2026 - 2027. Leitað er eftir metnaðarfullum, sjálfstæðum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn til þess að starfa í grunnskóla.
Vogaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 410 nemendur og um 80 starfsmenn. Skólinn er staðsettur við Skeiðarvog í Vogahverfinu í Reykjavík. Þar er einnig sérdeild fyrir einhverfa nemendur. Unnið er eftir menntastefnu Reykjavíkur ,,Látum draumana rætast“, uppbyggingarstefnunni og verið er að innleiða aðferðir leiðsagnarnáms. Í skólanum ríkir jákvæður skólabragur sem einkennist af virðingu, samkennd, samvinnu, gleði og ábyrgð.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og þátttöku í skólastarfi.
- Aðstoða nemendur í félagslegum samskiptum.
- Aðstoða nemendur við að ná settum viðmiðum samkvæmt námskrá undir leiðsögn kennara.
Hæfniskröfur
- Hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum Self-assessment Grids (CEFR) - European Language Portfolio (ELP) (coe.int)
Frekari upplýsingar um starfið
Starfið er laust frá og með 20. ágúst 2026. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sameykis og Reykjavíkurborgar. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veita Sveinfríður Olga Veturliðadóttir, deidarstjóri sérkennslu sveinfridur.o.veturlidadottir sveinfridur.o.veturlidadottir@rvkskolar.is og Snædís Valsdóttir, skólastjóri, snaedis.valsdottir@rvkskolar.is
Vogaskóli við Skeiðarvog, 104 Reykjavík, sími: 411-7373