Back to the jobs page

Kennarastaða í Hamraskóla frá 1. ágúst 2026.

Laus er 100% staða kennara í Hamraskóla frá 1. ágúst 2026. Skólinn er staðsettur í Hamrahverfinu í Grafarvogi og nemendur eru kringum 240 í 1.-7. b. Í Hamraskóla er metnaðarfullt skólastarf og unnið skv. hugmyndafræði leiðsagnarnáms. Leitum að áhugasömum kennara sem vill bætast í hóp okkar frábæra starfsfólks.

Fullt starf Hamraskóli 112
Apply

Helstu verkefni og ábyrgð

Sinna kennslu og umsjón með nemendum og taka þátt í þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki.

Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.

Vinna samkvæmt stefnu skólans og taka þátt í skólaþróunarvinnu.

Vinna skv. hugmyndafræði leiðsagnarnáms í kennslu.

Hæfniskröfur

Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.

Reynsla af kennslu í grunnskóla og áhugi á að starfa með börnum.

Reynsla af kennslu nemenda með íslensku sem annað mál.

Skipulagshæfileikar og faglegur metnaður.

Æskilegt að þekkja til hugmyndafræði leiðsagnarnáms.

Mjög góð íslenskukunnátta.

Frekari upplýsingar

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags grunnskólakennara.

Starfshlutfall er 100%

Ráðningarform. Ótímabundin ráðning.

Nánari upplýsingar um starfið veita Anna Bergsdóttir skólastjóri, í síma 4116800 og tölvupósti anna.bergsdottir@reykjavik.is

Apply