Back to the jobs page

Sjúkraliði Droplaugarstaðir MND deild

Óskað er eftir metnaðarfullum sjúkraliða til starfa á MND deild Droplaugarstaða. Deildin er einstök með einungis fjögur MND rými. Íbúar geta haft þörf fyrir sérhæfða hjúkrun og eru allir starfsmenn sérþjálfaðir í umönnun MND sjúklinga. Boðið er upp á sérhæfða þjálfun og aðlögun. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag.  

Fullt starf Reykjavíkurborg
Apply

Óskað er eftir metnaðarfullum sjúkraliða til starfa á MND deild Droplaugarstaða. Deildin er einstök með einungis fjögur MND rými. Íbúar geta haft þörf fyrir sérhæfða hjúkrun og eru allir starfsmenn sérþjálfaðir í umönnun MND sjúklinga. Boðið er upp á sérhæfða þjálfun og aðlögun. Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulag.

Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.

Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.

Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.

Íbúar eru 84 á 4 deildum, allir búa í sérbýli með baðherbergi. Á Droplaugarstöðum er lítil sérhæfð MND deild með einungis fjóra íbúa þar sem veitt er sérhæfð þjónusta í einstöku starfsumhverfi.

Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.

Við bjóðum upp á

  • Gæðavottað starfsumhverfi
  • Krefjandi og spennandi verkefni
  • Skemmtilegan og faglegan starfsmannahóp
  • Heimilislegt vinnuumhverfi
  • Starfshlutfall og fyrirkomulag samkomulagsatriði

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn störf sjúkraliða
  • Umönnun íbúa
  • Veitir íbúum persónulega aðstoð og stuðning við athafnir daglegs lífs
  • Vinnum samkvæmt markmiðum, hugmyndafræði og gæðastefnu heimilisins
  • Vinnur samkvæmt gæðakerfi Droplaugarstaða

Hæfniskröfur

  • Sjúkraliði með íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði í starfi, þolinmæði og jákvætt viðhorf
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagsins

Nánari upplýsingar um starfið veitir Mahmoud F.M. Abusaada, deildarstjóri MND deildar. Netfang Mahmoud.F.M.Abusaada@reykjavik.is eða í síma 414-9500

Apply