Back to the jobs page

Verkefnastjóri alþjóðasamtarfs og styrkja

Viltu leiða alþjóðlegt samstarf og efla nýsköpun í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkur? Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi til að styðja við starfsstaði okkar við að sækja fram á alþjóðavettvangi og innleiða nýja þekkingu í leikskólum, grunnskólum og frístundastarfi.

Fullt starf Nýsköpunarmiðja menntamála 105
Apply

Verkefnastjóri alþjóðasamstarfs og styrkja starfar hjá Nýsköpunarmiðju menntamála (NýMið). Meginmarkmið starfsins er að auka þátttöku starfsstaða skóla- og frístundasviðs í alþjóðlegum verkefnum og efla þannig faglegt starf og nýbreytni. NýMið gegnir lykilhlutverki í innleiðingu menntastefnu Reykjavíkurborgar, „Látum draumana rætast“, og styður við stjórnendur og starfsfólk í þróun faglegra starfshátta.

Viðkomandi mun bera ábyrgð á því að halda utan um framkvæmd alþjóðlegra samstarfsverkefna, kortleggja tækifæri, leiðbeina stjórnendum við umsóknarferli og sjá til þess að alþjóðleg þekking nýtist beint í starfi með börnum og ungmennum í borginni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Kortlagning og greining: Greining á alþjóðlegu samstarfi og verkefnum innan sviðsins auk þess að bera kennsl á ný tækifæri til samstarfs.
  • Styrkjaöflun: Umsjón með Erasmus+ aðildarverkefnum sviðsins bæði í skólahluta og æskulýðshluta Erasmus+ auk annarra alþjóðaverkefna (s.s. Nordplus og verkefna í uppbyggingarstjóði EES).
  • Ráðgjöf og stuðningur: Kynna styrktarmöguleika og alþjóðleg verkefni fyrir stjórnendum og starfsfólki SFS og aðstoða við gerð vandaðra styrkumsókna.
  • Innleiðing: Ábyrgð á að stefnumótun og verkefni falli að lögum, aðalnámskrá og menntastefnu Reykjavíkurborgar.
  • Samstarf: Starfið felur í sér samvinnu alla starfsstaði Skóla- og frístundasviðs auk samstarfs við innlendar og erlendar stofnanir, háskóla og félagasamtök.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi (t.d. á sviði menntamála, félagsvísinda eða stjórnunar).
  • Víðtæk reynsla af og þekking á alþjóðlegu samstarfi.
  • Reynsla af verkefnastjórnun og þróunarstarfi er skilyrði.
  • Færni í gerð alþjóðlegra og innlendra styrkumsókna (t.d. Erasmus+, Nordplus).
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og færni í miðlun upplýsinga.
  • Frumkvæði, leiðtogahæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða í menntamálum.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku. Færni í einu Norðurlandamáli er kostur.
  • Góð tölvukunnátta.

Við bjóðum

  • Spennandi og lifandi vinnustað sem leggur áherslu á nýsköpun.
  • 36 stunda vinnuviku.
  • Samgöngusamning, heilsustyrk, menningarkort og sundkort.
  • Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Við hvetjum fólk af öllum kynjum og með fjölbreyttan bakgrunn til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir: Hjörtur Ágústsson, Skrifstofustjóri nýsköpunar og þróunar. Hjortur.Agustsson@reykjavik.is 

Apply