Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Heimaþjónusta Norðurmiðstöðvar leitar að öflugum iðjuþjálfa í þverfaglegt teymi sem veitir endurhæfingu í heimahúsi.
Endurhæfingarteymi Reykjavíkurborgar auglýsir eftir iðjuþjálfa í samþætta heimaþjónustu. Um 80-100% starfshlutfall er að ræða í dagvinnu.
Reykjavíkurborg veitir samþætta heimaþjónustu sem samanstendur af félagslegri heimaþjónustu og heimahjúkrun sem og endurhæfingu í heimahúsi. Hugmyndafræði endurhæfingar í heimahúsi byggist á þverfaglegri endurhæfingu inn á heimili íbúans þar sem áhersla er lögð á hjálp til sjálfshjálpar. Þjónustan er tímabundin og ætluð þeim sem eru að kljást við færniskerðingu og þurfa heimaþjónustu.
Endurhæfingarteymið samanstendur af iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðingi, sjúkraþjálfara/íþróttafræðingi, sjúkraliðum og félagsliðum. Teymið veitir persónumiðaða þjónustu þar sem endurhæfingaráætlun byggist á þörfum íbúans og hefur það markmið að styðja og styrkja færni, auka bjargráð og virkja samfélagsþátttöku. Hugmyndafræðin kemur frá Norðurlöndunum og er stuðst við Fredericia hugmyndafræðina frá Danmörku.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfa eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði endurhæfingar.
- Metur þjónustuþörf og útvegar hjálpartæki í samvinnu við aðrar fagstéttir.
- Skipuleggur og veitir einstaklingsbundna iðjuþjálfun, ráðgjöf og meðferð.
- Eftirfylgd með einstaklingum, sjálfsbjargargetu og endurhæfingu.
- Skráir í Sögu og heimaþjónustugrunn.
- Þróun og þátttaka í þverfaglegu starfi og faglegri uppbyggingu.
- Önnur þau verkefni sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntun-og hæfniskröfur
- Íslenskt starfsleyfi iðjuþjálfa.
- Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum.
- Áhugi og metnaður til að veita góða þjónustu.
- Góð samskiptahæfni.
- Íslenskukunnátta C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Þekking á sjúkraskrákerfinu SÖGU er kostur.
- Reynsla af störfum með öldruðum er kostur.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
Fríðindi í starfi
- Sund- og menningarkort.
- Samgöngusamningur.
- Heilsustyrkur.
- 36 stunda vinnuvika.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Iðjuþjálfafélags Íslands. Nánari upplýsingar um starfið veitir Aldís Ösp Guðrúnardóttir í síma 620-1940 eða aldis.osp.gudrunardottir@reykjavik.is