Back to the jobs page

Leikskólakennari/ leiðbeinandi - Dalskóli leikskóli

Leiksólakennara/leiðbeinanda vantar til starfa í leikskólahluta Dalskóla. 

Fullt starf Dalskóli - leikskóladeild 113
Apply

Leikskólahluti Dalskóla

Leikskólakennari eða annað uppeldismenntað fólk óskast til starfa í leikskólahluta Dalskóla í Úlfarsárdal. Okkur vantar starfsmenn til að vinna með bæði yngri og eldri börnum. Í Dalskóla er unnið með hugmyndafæði Reggio Emilia þar sem skapandi starf er í forgangi með öllum börnum.

Dalskóli er samrekinn leik-, grunn- og frístundaskóli. Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega starfshætti og samvinnu. Í skólanum ríkir viðhorf virðingar fyrir einstaklingnum og sérkennum hans. Dalskóli er einn af þekkingarskólum borgarinnar í leiðsagnarnámi. Í Dalskóla er mikið um þemabundið smiðjustarf í samfélags- og náttúrugreinum auk samvinnu kennara.

Í skólanum er lögð áhersla á lifandi, skemmtilegt og skapandi skólastarf. Leikskólinn vinnur eftir hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem barnið er í brennidepli og nær að njóta sín í leik og starfi. Stutt er í náttúruna og nýtum við það með því að fara í skemmtilegar ævintýraferðir.

Dalskóli er stækkandi leikskóli og eru tvær elstu deildar leikskólans starfandi í nýju húsnæði sem staðsett er við grunnskólahluta. Á yngri deildum skólans eru 6 deildir en þar dvelja börn á aldrinum eins til þriggja ára. Húsnæði og öll aðstaða er til fyrirmyndar bæði fyrir börn sem og starfsmenn.

Fríðindi í starfi:

  • Menningarkort – bókasafnskort
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
  • 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
  • Heilsuræktarstyrkur

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið er laust eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara, þ.m.t. að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfi undir stjórn deildarstjóra.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun, eða önnur uppeldismenntun æskileg
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara eða viðeigandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Sólveig ÞórarinsdóttirSolveig.Thorarinsdottir@rvkskolar.is

 sími 8998107 Dalskóli leikskólahluti Úlfarsbraut 11 

Apply