Back to the jobs page

Deildarstjóri Langholt

Við í leikskólanum Langholti erum að leita að deildarstjóra í teymið okkar. Leikskólinn er staðsettur í Sólheimum í Reykjavík og er 8 deilda leikskóli með 164 börnum. 

Leiðarljós leikskólans eru virðing, gleði og vinátta. Áherslur okkar eru læsi og útinám.

Fullt starf Leikskólinn Langholt 104
Apply

Við erum að leita að deildarstjóra í teymið okkar.

Við skólann starfar metnaðarfullur starfsmannahópur með fjölbreytta menntun og reynslu. Saman vinnum við að því markmiði að öllum börnum líði vel og þau nái að vaxa, dafna og njóta sín. Við leggjum áherslu á góð og jákvæð samskipti. 

Við innleiðingu á Menntastefnu borgarinnar leggjum við að áherslu á fagmennsku og samstarf í innleiðingu á markvissari vinnu með læsi.

Hér má sjá myndband um leikskólann okkar https://vimeo.com/361825252

Starfslýsing

Stjórnun og skipulagning:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.

Uppeldi og menntun:

  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.

Foreldrasamvinna:

  • Skipuleggur samvinnu við foreldra/forráðamenn barnanna á deildinni s.s. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
  • Ber ábyrgð á að foreldrar/forráðamenn fái upplýsingar um þroska og líðan barnsins og þá starfsemi er fram fer á deildinni og ekki varðar trúnað gagnvart öðrum börnum og foreldrum/forráðamönnum þeirra.
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Ber ábyrgð á að leitað sé samþykkis foreldra/forráðamanna barns, áður en leitað er aðstoðar annarra sérfræðinga.

Annað:

  • Skipuleggur samvinnu við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við leikskólastjóra.
  • Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
  • Lipurð og hæfni í samskiptum.
  • Sjálfstæði og frumkvæði.
  • Reynsla af starfi í leikskólum nauðsynleg.
  • Hreint sakavottorð.

Í öllu starfi skóla- og frístundasviðs er unnið að innleiðingu Menntastefnu Reykjavíkur, Látum draumana rætast, þar sem leiðarljósin eru virkni og þátttaka barna, aukið samstarf og fagmennska. Stjórnendur í leikskólum borgarinnar ertu hluti af fjölmennu teymi fagfólks í öflugu lærdómssamfélagi.

Fríðindi í starfi

  • Stytting vinnuviku
  • Sundkort og heilsustyrkur
  • Bókasafnskort og frítt á söfn með menningarkortinu
  • Samgöngustyrkur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Starfið er laust en einnig er hægt að hefja starf eftir samkomulagi.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Bragadóttir, leikskólastjóri s. 411-3130 og í tölvupósti sigrun.bragadottir@reykjavik.is

Apply