Stuðningsfulltrúi- Íbúðakjarna í Grafarvogi
Óskað er eftir öflugum og jákvæðum stuðningsfulltrúa til starfa í íbúðakjarna í Grafarvogi. Um er að ræða dag, kvöld, nætur og helgarvaktir Vegna sérstakra aðstæðna er eingöngu óskað eftir kvenkyns umsækjendum.
Í íbúðakjarnanum búa fimm konur hver í sinni íbúð. Starfsmenn sinna einnig stuðningi til tveggja íbúa sem búa sjálfstætt í húsnæði með stuðningi. Hlutverk stuðningsfulltrúa er að styðja og aðstoða íbúa við athafnir daglegs lífs, mæta þörfum íbúa á einstaklingsmiðaðan hátt.
Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
Hæfniskröfur
- Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis stéttarfélags.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Bjarghildur Pálsdóttir í tölvupósti bjarghildur.palsdottir@reykjavik.is