Deildarstjóri í Engjaborg
Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Engjaborg.
Við leitum að frábærum deildarstjóra til að leiða deildastarf og eiga í góðu samstarfi við aðrar deildir leikskólans.
Engjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi. Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir eru mikilvægir og hafa sömu réttindi. Námið fer fram í gegnum leikinn og lögð er áhersla á virkni og þátttöku allra. Í öllu starfi okkar leggjum áherslu á styrkleika barna og áhugasvið þeirra og að ólíkar aðferðir henti ólíkum aðilum.
Gildi Engjaborgar eru Vellíðan – Virðing - Sköpun
Um er að ræða 100% starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt lögum um leikskóla, aðalnámskrá leikskóla, stefnu og skipulagi.
- Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og starfsáætlun leikskólans á deildinni.
- Annast daglega verkstjórn á deild, skipulagningu, framkvæmd og mati deildarstarfs.
- Ber ábyrgð á upplýsingagjöf og samvinnu við foreldra.
- Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni.
- Er í stjórnendateymi leikskólans og tekur þátt í gerð skólanámskrár, starfsáætlunar og þróunarverkefnum.
Hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara.
- Reynsla af leikskólastarfi æskileg
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
- Íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- 36 stunda vinnuvika
- Sundkort
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Hádegismatur
Frekari upplýsingar um starfið Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara. Starfshlutfall: 100%. Umsóknarfrestur: Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Magnúsdóttir leikskólastjóri í síma 6243203 og tölvupósti anna.magnusdottir@reykjavik.is