Isabel Alejandra Diaz

Deputy City Councilor
Social Democratic Alliance
Isabel Alejandra Diaz

Um Isabel

Isabel er með BA gráðu í stjórnmálafræði og MA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Á milli gráða gegndi hún embætti forseta Stúdentaráðs HÍ, og var þá fyrsta konan af erlendum uppruna til þess sem og fyrsta konan til að gegna embættinu í tvö ár. Frá þeim tíma hefur Isabel komið víða fram, meðal annars í pallborðum á 40 ára afmælishátíð Kvennaframboðsins í Reykjavík 2022, í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins 2023 og á Velsældarþingi 2024. 

Þá hefur Isabel setið í ýmsum nefndum og hópum á sviði mennta-, menningar- og félagsmála, svo sem íslensku UNESCO nefndinni, stjórn Vigdísarstofnunar, dómnefndir FKA og Nordic Pioneer Prize. Um þessar mundir starfar hún sem sérfræðingur í jafnlaunamálum hjá Jafnlaunastofu og var áður fréttamaður hjá RÚV og verkefnisstjóri hjá Háskóla Íslands.