Krókháls 20

Fimmtudagur 25. ágúst 2022

Reykjavíkurborg óskar eftir kauptilboðum í byggingarrétt á Krókhálsi 20 undir atvinnuhúsnæði. 

Staða auglýsingar - Útrunnin

Á lóðinni Krókháls 20 er heimilt að byggja húsnæði undir atvinnustarfsemi á tveimur byggingarreitum, allt að 4312,5 m² á Krókhálsi A og 4900 m² á Krókhálsi B. Heimilt er að byggja 4-5 hæða húsnæði sem grafa sig inn í hæð. Hámark 1 bílastæði per 75 - 360 m² eftir starfsemi auk lágmarksfjölda hjólastæða, sjá nánar í deiliskipulagsgögnum.

Frekari upplýsingar og gögn um lóðina má sjá með því að skrá sig inn á útboðsvef Reykjavíkurborgar. Slóð hér að neðan.

Skilafrestur tilboða er fyrir kl. 12:00, 16. september 2022 á útboðsvef Reykjavíkurborgar.