Borgarhönnunarstefna
Meginmarkmið Borgarhönnunarstefnu Reykjavíkur er að skapa mannvæna og sjálfbæra borg sem styrkir samfélag, endurspeglar menningararfinn og býður upp á fjölbreytt tækifæri fyrir alla íbúa.
Með stefnunni er kallað eftir skýrri afstöðu í þróunarverkefnum framtíðarinnar, hún leggur grunn að skýrari ákvarðanatöku og innleiðingu sem styður við skipulag, umhverfismál og velferð borgarbúa.