Borgarbókasafn Reykjavíkur
Borgarbókasafnið starfrækir átta bókasöfn þar sem menning og mannlíf blómstrar. Hvert og eitt safn hefur sína sérstöðu og sinn sjarma og því ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og nýtt sér aðstöðuna sem í boði er.
Opið rými allra
Á Borgarbókasafninu er hægt er að grúska í safnkostinum, taka þátt í smiðju, kíkja á kaffistund eða myndlistarsýningu, nýta aðstöðuna á Verkstæðinu, njóta samveru með fjölskyldunni eða hitta leshringinn.
Borgarbókasafnið er í stöðugri þróun og starfsfólk leggur sig fram við að bjóða upp á spennandi safnkost, faglega upplýsingaþjónustu, skemmtilega og fjölbreytta viðburðadagskrá. Tekið er vel á móti nýjum hugmyndum og starfsfólkið er tilbúið að styðja við og taka þátt í alls konar verkefnum sem geta átt heima undir hatti bókasafnsins.
Borgarbókasafnið fagnar margbreytileika samfélagsins og er Regnbogavottað bókasafn.
Bókasöfnin á korti