Borgaraþing Reykjavíkur 2025

Teikning af álft og önd.

Boðað er til opins borgaraþings 6. september nk. milli kl. 10-12.30 í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur. Umfjöllunarefni borgaraþings verður að þessu sinni; Hvernig verður Reykjavík kolefnishlutlaus borg?

Dagskrá

10:00 - 10:10 Opnun borgaraþings
Heiða Björg Hilmsdóttir, borgarstjóri, opnar borgaraþingið og býður þátttakendur velkomna.

10:10 – 10:25 Kynning á Loftslagsborgarsamningi Reykjavíkurborgar
Hrönn Hrafnsdóttir, deildarstjóri loftslagsmála.

10:25 - 12:00 Umræður á borðum
Ráðgjafar frá Arcur kynna fyrirkomulag vinnu á borðum og hópar hefja umræður.

12:00 - 12:30 Samantekt
Örstutt yfirlit yfir helstu umræðufleti og sjónarmið sem fram koma í umræðum á borðum.

Á borgaraþinginu verður unnið á borðum og umræðum skipt í 4 flokka:

  • Gönguborgin Reykjavík
  • Hjólaborgin Reykjavík
  • Útilífsborgin Reykjavík
  • Almenningssamgönguborgin Reykjavík 

Borgaraþingið mun fara fram á íslensku en þeir sem óska eftir tungumálaaðstoð geta sent tölvupóst á netfangið lydraedi@reykjavik.is

Mikilvægt er að skrá sig á þingið þar sem húsrými er takmarkað: https://forms.office.com/e/eGpjLgFktA

 

Sanna Magdalena Mörtudóttir

forseti borgarstjórnar Reykjavíkur