Veitingarekstur í Listasafni Reykjavíkur

Listasafn Reykjavíkur óskar eftir áhugasömum og skapandi rekstraraðilum til að taka að sér veitingarekstur í Hafnarhúsi, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík. Óskað er eftir raunhæfum tillögum þar sem rekstur, matseðill og andrúmsloft eru útlistuð ásamt skýrri sýn á hvernig veitingahúsarekstur styður við starfsemi framsækins listasafns og markhópa þess.

Mikilvægt er að gott samstarf sé milli safnsins og rekstraraðila og að rekstur og yfirbragð veitingareksturinn sé í góðu samræmi við umhverfi og starfsemi Listasafns Reykjavíkur. Hafnarhús er vettvangur íslenskrar og alþjóðlegrar samtímamyndlistar auk þess að vera heimili Erró-safns. Hafnarhús er eitt af þremur safnhúsum Listasafns Reykjavíkur og þar eru sex sýningarsalir á tveimur hæðum, fjölnotasalur auk útiports. Þar er starfrækt safnverslun. Meðal helstu markhópa eru ungt fólk á aldrinum 18-28 ára, myndlistarsenan og ferðamenn.

Veitingarekstur í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi þarf að vera í höndum aðila með eigið starfs- og rekstrarleyfi. Rekstraraðili þarf einnig að geta sýnt fram á að vera skuldlaus við Reykjavíkurborg, í skilum með opinber gjöld og greiðslur lífeyrissjóðsiðgjalda.  

Viðkomandi skuldbindur sig til þess að bjóða upp á þjónustu þegar safnið er opið. Opnunartími safnsins er alla daga frá 10:00 - 17:00, nema fimmtudaga þegar opið er til 22:00.

Veitingaaðstaða Hafnarhúss er staðsett á 2. hæð safnsins og samanstendur af veitingarými og fullbúnu eldhúsi.

Í umsókninni eiga að koma fram allar nauðsynlegar upplýsingar um útfærslu á rekstrinum og hugmyndum tengdum honum. Æskilegt er að leggja á áherslu á eftirfarandi:

  • Lýsing á starfseminni sem umsækjandi hyggst reka í Hafnarhúsi og fyrirkomulagi þess rekstrar.
  • Upplýsingar um reynslu og þekkingu umsækjanda og starfsfólks á veitingarekstri.
  • Upplýsingar um þær veitingar sem umsækjandi hyggst bjóða til sölu.
  • Upplýsingar um hvernig umsækjandi hyggst haga markaðssetningu og upplýsingagjöf til gesta.
  • Þættir í starfseminni sem munu styðja við markmið safnsins um að ná til ungs fólk, myndlistarsenunnar og ferðamanna.
  • Hugmyndir um vistvænan rekstur og tillögur um samstarf hvað varðar meðhöndlun úrgangs, endurvinnslu og endurnýtingu sem samræmist stefnu Reykjavíkurborgar um bætta sorphirðu. 

Ásamt greinargerð er ákjósanlegt að tillögu fylgi einföld viðskiptaáætlun.

Gert er ráð fyrir að leigusamningur taki gildi við fyrsta tækifæri og verði gerður til reynslu í eitt ár. Möguleiki er á áframhaldandi samstarfi samkvæmt nánara samkomulagi ef áhugi verður fyrir hendi hjá báðum aðilum.

Matsnefnd innan Listasafns Reykjavíkur mun fara yfir umsóknir og áskilur sér rétt til að hefja samtal við álitlegasta samstarfsaðila eða hafna öllum.

Skilafrestur umsókna er til og með 27. mars 2026. Ekki verður tekið við umsóknum sem berast eftir þann tíma.

Fyrirspurnir og umsóknir skulu berast til Listasafns Reykjavíkur með tölvupósti á listasafn@reykjavik.is

Efni tölvupóstar skal vera Veitingarekstur í Listasafni Reykjavíkur.

Róbert Reynisson
Hafnarhúsið, beint framan á það. Sést bara í húsið og stéttina fyrir framan, ekki himinn. Hlutlaust veður.