Veitingarekstur í Dillonshúsi í Árbæjarsafni sumarið 2025
Borgarsögusafn Reykjavíkur auglýsir eftir áhugasömum og reyndum aðilum til að taka að sér veitingarekstur í Dillonshúsi á Árbæjarsafni sumarið 2025.
– umsóknarfrestur til 25.maí.
Markmiðið með veitingarekstrinum er að:
- Auka aðdráttarafl safnsins með því að bjóða upp á léttar veitingar á opnunartíma safnsins yfir sumartímann.
- Að starfsemi í húsinu verði hagað á þann veg sem hæfir sögu þess, aldri, byggingagerð og hlutverki þess í safnkosti Árbæjarsafns. Fyllsta tillit sé tekið til þessa í innréttingum, tæknibúnaði, rekstri og umgengni.
- Í húsinu geti farið fram veitingasala, minni samkomur og annað er styrki rekstrarforsendur safnsins.
- Reynsla umsækjanda af veitingarekstri og skyldum rekstri.
- Hugmyndum aðila í tengslum við reksturinn.
- Leigufjárhæð.
Mat áhugasamra aðila:
Umsóknir verða metnar á grundvelli eftirfarandi þátta:
Sérstök matsnefnd á Borgarsögusafni mun fara yfir umsóknir.
Borgarsögusafn áskilur sér rétt til að taka ákjósanlegasta tilboði að dómi matsnefndar eða hafna öllum.
Skilyrði; Áhugasamir aðilar sem sækjast eftir því að taka að sér veitingarekstur þurfa að vera skuldlausir við Reykjavíkurborg, í skilum með opinber gjöld og greiðslur lífeyrissjóðsiðgjalda.
Samningstími:
Gert er ráð fyrir að leigusamningur taki gildi 1. júní 2025 og ljúki 31. ágúst 2025. Möguleiki er á áframhaldandi samstarfi samkvæmt nánara samkomulagi ef áhugi verður fyrir hendi hjá báðum aðilum.
Nánari upplýsingar:
Í Dillonshúsi er eldhúsaðstaða og allur búnaður til veitingarekstur. Borgarsögusafn gerir ráð fyrir að veitingasalan í Dillonshúsi sé starfrækt á opnunartíma safnsins en frekari útfærsla á opnunartíma veitingasölu getur verið samkomulagsatriði. Lágmarksopnunartími væri þó alltaf á laugar- og sunnudögum, öðrum almennum frídögum og þegar stærri viðburðir eru á safninu.
Möguleiki er að útfæra samkomulag um veitingarekstur þannig að salir í öðrum húsum safnsins séu aðgengilegir rekstraraðila fyrir smærri samkomur.
Áhugsamir geta óskað eftir nánari upplýsingum og/eða fengið að skoða aðstæður á safninu samkvæmt nánara fyrirkomulagi með því að senda fyrirspurn á netfangið borgarsogusafn@reykjavik.is
Fylgigögn með umsókn:
Eftirfarandi gögnum ber að skila með umsókn:
- Staðfesting frá Skattinum að umsóknaraðili sé í skilum með opinber gjöld.
- Staðfesting frá viðkomandi lífeyrissjóðum að umsóknaraðili sé í skilum með lífeyrissjóðsiðgjöld.
- Stutt greinargerð sem lýsir fyrirhugaðri starfsemi og reynslu umsóknaraðila af veitingarekstri eða sambærilegum rekstri.
- Upplýsingar um reynslu og/eða þekkingu umsóknaraðila af safnastarfsemi eða eldri húsagerðum.
- Tilgreina hverjir samstarfsaðilar umsóknaraðila eru, ef um þá er að ræða.
Skil umsókna:
Skilafrestur umsókna er til og með 25. maí 2025. Ekki verður tekið við umsóknum sem berast eftir framangreindan tíma.
Umsóknir skulu berast til Borgarsögusafns með tölvupósti á borgarsogusafn@reykjavik.is.