Húsnæði fyrir dagforeldra við Hallgerðargötu

Reykjavíkurborg býður til leigu húsnæði fyrir dagforeldra að Hallgerðargötu 11 A. Húsnæðið er tveggja herbergja 55 fermetra horníbúð á fyrstu hæð.  

 

Hallgerðargata - Kirkjusandur - inngarður

Um er að ræða tímabundinn samning. Húsnæðið verður eingöngu leigt þeim sem hyggst nýta húsnæðið til daggæslu barna að uppfylltum skilyrðum skilyrðum Gæða og eftirlitsstofnunar velferðamála samanber núgildandi reglugerð. Gerð er krafa um að tveir dagforeldrar vinni saman með 8-10 börn til þess að húsnæðið nýtist sem best.

Nánar um húsnæði og lóð

Hallgerðargata 11A. Eignin er tveggja herbergja horníbúð á fyrstu hæð, merkt 114, birt stærð 55,4 fm. Hún skiptist í anddyri, baðherbergi, svefnherbergi, alrými þar sem eldhús og stofa eru í opnu rými og svalir.

LÓÐ: Snjóbræðsla er í helstu göngustígum í garði. Hluti af lóð hússins er afgirt leiksvæði fyrir leikskólann.

UMHVERFIÐ: Svæðið er í miðri íbúðarbyggð og er nálægt útivistar- og náttúrusvæðum eins og Laugarnesi og Laugardal. Mikil uppbygging hefur átt sér stað við Hallgerðargötu og eru nánast allar byggingar nýjar eða nýlegar. Afar stutt er í fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni og afþreyingu í Laugardal og Borgartúni en þar er úr mörgu að velja fyrir alla aldurshópa. Í göngufæri er svo Laugalækur sem ber sérstakan sjarma með sínum litlu einstöku verslunum og annarri þjónustu. Heilsugæslan Kirkjusandi er í næsta húsi auk þess er ungbarnaleikskóli í húsinu. Áhersla er lögð á að brjóta upp útlit húsanna með mismunandi litum og áferð sem draga fram sérkenni hvers húss og gera reitinn í senn nútímalegan og spennandi. Sérstök áhersla hefur verið lögð á efnisval, áferðir og vandaðan frágang. Skjólgóður inngarður skapar svo vettvang fyrir skemmtilegt sameiginlegt svæði íbúa.

Á lóðinni Hallgerðargata 1 eru 4 stigahús á fimm hæðum sem samtals hýsa 81 íbúðir. Því til viðbótar er bílakjallari sem hægt að að leigja bílastæði í. Inngangar í húsin er af gangstétt í borgarlandi götu megin. Í kjallara eru séreignageymslur ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. 

Nánari upplýsingar og skil tilboða

Áhugasamir geta sent fyrirspurnir á netfangið esr@reykjavik.is til að fá nánari upplýsingar eða til að fá að skoða húsnæðið. 

Tilboð sendist í síðasta lagi mánudaginn 16. júní 2025 með því að fylla út tilboðsform. 
Opna tilboðsform

Ekki er hægt að skila inn tilboðum eftir að tilboðsfrestur er útrunninn. 

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.