Hentugar lóðir fyrir leikskóla
Reykjavíkurborg leitar að lóðarhöfum, landeigendum eða eigendum húsnæðis innan borgarmarkanna sem hafa yfir að ráða lóð/um eða húsnæði sem henta til leikskólastarfsemi, hvort sem um er að ræða uppbyggingu nýs leikskóla eða breytingu á eldra húsnæði fyrir leikskóla. Um er að ræða mikilvægt skref í að fjölga leikskólaplássum í borginni í samræmi við stefnu borgarstjórnar.
Horft er til húsnæðis sem hægt væri að nýta fyrir leikskóla fyrir um 70-120 börn. Æskilegt er að um sé að ræða 800-1500m2 húsnæði ásamt 1400-2400m2 aðliggjandi útileiksvæði, sem er sólríkt og skjólgott. Endanlegt mat fer þó eftir staðsetningu, legu lóðar, aðgengi, skipulagsforsendum og mögulegri byggingarmagnsútfærslu. Til greina kemur að breyta deiluskipulagi á lóðum til aðlögunar fyrir starfsemina.
Miðað er við að taka á leigu húsnæði sem er tilbúið til notkunar innan 6-18 mánaða frá undirritun leigusamnings. Mögulegt er að eitt eða fleiri húsnæði verði tekin til leigu.
Markaðskönnun
Um er að ræða markaðskönnun þar sem kannaður er áhugi, geta og sjónarmið markaðarins vegna fyrirhugaðrar fjölgunar leikskólaplássa. Markaðskönnunin er liður í upplýsingaöflun borgarinnar og felur hún ekki í sér loforð um viðskipti.
Gert er ráð fyrir að leigutími verði 10-15 ár með mögulegri framlengingu, fullbúið til notkunar, án lauss búnaðar.
Gott aðgengi skal vera fyrir alla, þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi og gangandi og hæfilegur fjöldi bílastæða miðað við staðsetningu fyrir starfsfólk og foreldra að fara með börn í leikskóla.
Húsnæðið þarf að vera hentugt, bjart, með vinnuumhverfi sem er hvetjandi, tekur vel á móti starfsfólki, börnum og foreldrum og endurspeglar góðan vinnuanda.
Gögn sem æskilegt er að fylgi þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
- Upplýsingar um lóðarstærð, eignarhald og hvernig aðgengi að húsnæði er frá lóð og útileiksvæði
- Afhendingartíma húsnæðis
- Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis
- Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
- Áætlað leiguverð á hvern m² og heildarleiguverð
- Gildandi deiliskipulag svæðis það er lóðar og næstu lóða
- Tilvísun í gildandi aðalskipulag
Áskilinn er réttur til að óska eftir því við leigusala að hann leggi fram úttektarskýrslu, frá óháðum aðila, um almennt ástand húsnæðis til að mynda að húsnæðið sé laust við rakaskemmdir. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning.
Tillögur og fyrirspurnir skulu berast skrifstofu eignastýringar á tölvupóstfangið lodir@reykjavik.is.
Við mat á hagkvæmni tillagna verður meðal annars tekið tillit til leiguverðs, stærð húss og lóðar, skipulag húsnæðis og lóðar út frá fyrirhugaðri starfsemi, öryggis, afhendingartíma, staðsetningu og aðkomu.