Gufunes: Stór skemma til leigu fyrir skapandi starf

Til leigu er skemma við Gufunesveg 25 fyrir skapandi starfsemi. Skemman verður leigð tímabundið meðan svæðið er í skipulags- og uppbyggingarferli.  

Gufunesvegur 25 í sínu náttúrlega umhverfi

Um er að ræða stóra óeinangraða, gluggalausa skemmu með steyptu gólfi þar sem vítt er til veggja og hátt til lofts.  Skemman, sem er einn geimur, er mjög hrá og á henni eru stórar innkeyrsludyr. Ekki er verið að leigja eignina sem geymslu. 

Skemma 

  • Fasteignarnúmer: F2038423  
  • Staðfang: Gufunes Áburðarverksmiðja.  
  • Matshluti: 02 0101, Byggingarár: 1955, Stærð: 1.139 fermetrar  
  • Skoða teikningu  
     

Í Gufunesi er verið að efla sköpun í breiðum skilningi, binda saman sköpunarkraft einstaklinga og minni fyrirtækja í borginni, efla fræðslu og þekkingarmyndun fyrir skapandi fólk og ýta undir tengslamyndun í skapandi greinum. Horft verður til þess að starfsemin í húsinu falli að nærumhverfinu og gæði það lífi. 

Við val á rekstraraðila verða nýnæmi hugmyndar, hönnun og útlit, tenging við anda skipulags á svæðinu, þekking, reynsla og fjárhagsgeta hans ásamt viðskiptahugmynd metin.  

Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum. 

Fyrirspurnir um húsnæðið má senda til Eignaskrifstofu Reykjavíkur, esr@reykjavik.is. 

Skilafrestur á tilboðum er til 17. febrúar 2024, kl. 17.00.  Tilboðum og lýsingu á starfsemi skal skila í tölvupósti til esr@reykjavik.is merkt „Gufunesvegur 25, tilboð“.