Auglýsing um nýtingu borgarlands í Gufunesi
Reykjavíkurborg auglýsir eftir aðila til að nýta borgarland í Gufunesi sem er nánar afmarkað samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Um er að ræða um 3900m2 landspildu í Gufunesi en svæðið er við vegstæði Sundabrautar samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar en smábílaklúbbur var áður með afnotasamning um sama svæði en þeim samningi er lokið.
Einungis óhagnaðardrifið félag sem starfar í almannaþágu kemur til greina sem leigutaki. Öll önnur framleiga, framsal eða atvinnustarfsemi á svæði er óheimil. Öll hreinsun, nýting og frágangur að loknum leigutíma á svæðinu er á kostnað og ábyrgð leyfishafa.
Um er að ræða afnotaleyfi með tveggja ára gildistíma frá undirritun samnings en er uppsegjanlegur af hálfu leigutaka og leigusala með 6 mánaða fyrirvara. Hætti leigutaki starfsemi sinni eða notkun á svæðinu ber að skila svæðinu aftur til leigusala.
Þættir sem einkum verður litið til við ákvörðun um leyfisveitingu á umræddu svæði eru eftirfarandi, en ekki skal litið svo á að röðun þeirra gefi til kynna vægi einstakra skilmála innbyrðis:
- Upplýsingar um hvernig umsækjandi hyggst nýta auglýsta lóð.
- Upplýsingar um hið óhagnaðardrifna félag sem starfar í almannaþágu, þar á meðal um tilgang þess, starfsemi, ábyrgðaraðila
Leigugjald er 202.000 krónur á ári sem samsvarar til lóðarleigu í Gufunesi.
Áhugasamir aðilar eru vinsamlegast beðnir um umbeðnar upplýsingar vegna notkunar á umræddu svæði til Reykjavíkurborgar á netfangið sbbstjornsysla@reykjavik.is, eigi síðar en 6. apríl næstkomandi klukkan 13:00.