Atvinnulóðir á Esjumelum - Fast verð

Reykjavíkurborg auglýsir byggingarrétt á fjórum lóðum á Esjumelum - Varmadal undir atvinnuhúsnæði til sölu á föstu verði.  Um er að ræða Bronssléttu 1, 3 og 5 og Norðurgrafarveg 3. 

Esjumelar - Lóðir til sölu

Lóðir á föstu verði

Þar sem lóðirnar eru á föstu verði geta þær farið í söluferli strax og áhugasamir aðilar hafa samband. 

Verð byggingarréttar er 45.000 kr./fm. án gatnagerðargjalda. 

Um er að ræða Bronssléttu 1, 3 og 5 og Norðurgrafarveg 3. 

  • Við Bronssléttu 1 er heimilt að byggja 1.350,8 m² atvinnuhúsnæði. Fast verð 60.786.000 kr. 
  • Við Bronssléttu 3 er heimilt að byggja 1.350,8 m² atvinnuhúsnæði. Fast verð 60.786.000 kr.  
  • Við Bronssléttu 5 er heimilt að byggja 1.378,0 m² atvinnuhúsnæði. Fast verð 62.010.000 kr. 
  • Við Norðurgrafarveg 3 er heimilt að byggja 1.316,8 m² atvinnuhúsnæði. Fast verð 59.256.000 kr. 

Nánari upplýsingar í gögnum hér á síðunni. Fyrirspurnir sendist til lodir@reykjavik.is

Myndir frá Esjumelum