Frá vegferð til veruleika
Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025
Velferðarsvið
Á árinu var áfram lögð rík áhersla á þróun stafrænnar þjónustu, aukna samvinnu og umbætur á þjónustuferlum á velferðarsviði. Fjölmörg þróunarverkefni höfðu veruleg áhrif á vinnulag starfsstöðva og þjónustu við borgarbúa, með áherslu á einföldun ferla, bætt aðgengi að upplýsingum og skilvirkari afgreiðslu mála.
Stafræn umbreyting og innleiðing lykilkerfa
Innleiðing Dala.care var fyrirferðarmikil á árinu og er nú að ljúka á öllum starfsstöðvum. Samhliða innleiðingu hefur átt sér stað umfangsmikil breyting á verklagi, þar sem þjónusta sem áður var unnin handvirkt hefur verið stafvædd. Kerfin taka nú yfir lykilþætti sem áður tilheyrðu málaskrá heimastuðnings og heimaþjónustu og hafa þannig einfaldað og samræmt skráningu og eftirfylgni.
Dala.care er heildstætt stafrænt stuðningskerfi fyrir heimaþjónustu og búsetuúrræði sem heldur utan um vaktaplön, dagleg verkefni og þjónustu við notendur, eykur yfirsýn og stuðlar að aukinni sjálfvirkni og skilvirkni í þjónustunni.
Unnið var að þróun Búa sem mun verða kjarnakerfi ráðgjafar og mun taka við af málaskrá velferðarsviðs. Sérstök áhersla hefur verið á málaflokkinn „Virkni og ráðgjöf“, þar sem grunnvirkni hefur verið bætt og unnið að innleiðingu nýrrar og skilvirkari tæknilausnar sem styður nútímalegra og skilvirkara vinnulag.
Áframhaldandi þróun SkólaBúa á árinu opnaði möguleika á nánari samvinnu milli skóla- og frístundasviðs og velferðarsviðs. Verkefnið telst brautryðjandi í átt að innleiðingu farsældarlaganna, þar sem markmiðið er að tryggja samþætta og samfellda þjónustu við börn og fjölskyldur.
Samstarf og samþætting þjónustu
Verkefnið Veita 2.0 markar tímamót í samstarfi sveitarfélaga með sameiningu Veitu Sambands Íslenska Sveitarfélaga og Reykjavíkur. Um er að ræða samrekstur og samþróun kerfa sem styrkir grunnþjónustu og eykur samnýtingu lausna.
Reykjavíkurborg gerðist á árinu aðili að þjónustugátt Tryggingastofnunar. Í tengslum við það hafa verið þróaðar Power Apps lausnir sem gera kleift að miðla framfærslugögnum og gögnum tengdum endurhæfingaráætlunum með skilvirkari hætti.
Bætt þjónustuferli og sjálfvirknivæðing
Mikil framþróun hefur orðið í rafrænni miðstöð með innleiðingu Jira beiðnakerfis sem tekur við erindum frá mörgum pósthólfum og skipuleggur þau í samræmt verkflæði. Þetta hefur aukið yfirsýn og bætt þjónustutíma.
Stafræna vinnuaflið Sæborg kom til sögunnar, sem styður við meðferð umsókna um sérstakan húsnæðisstuðning og léttir þannig á álagi í rafrænni þjónustu.
Þjónustuferli virkni og ráðgjafar voru einfölduð með Power Apps lausnum þar sem handvirk vinnubrögð hafa verið leyst af hólmi með sjálfvirkum ferlum.
Unnið var markvisst að því að færa gögn úr kerfum Velferðarsviðs yfir í gagnagrunn gagnaþjónustu Reykjavíkur. Markmiðið er að einfalda vinnslu gagna, bæta aðgengi og auka áreiðanleika þeirra. Í framhaldinu er stefnt að því að öll birting tölfræðigagna verði í gegnum gagnaþjónustu Reykjavíkur, sem mun annast miðlun þeirra út á við.
Aðrar umbætur og verkefni
- Innleiðing Mathilda eldhúsumsjónarkerfisins er á lokastigi og mun bæta stjórnun og rekstur í mötuneytum.
- Gæðahandbók var innleidd með það að markmiði að samræma verklag og styrkja gæðastjórnun.
- Upplýsingabrunnar VEL og Barnaverndar voru færðir yfir í SharePoint í kjölfar lokunar Workplace.
- Barnavernd tók þátt í þjónustusprettinum Afleggjaranum, þar sem nýttar voru aðferðir notendamiðaðrar hönnunar við greiningu og umbætur á tilkynningaferlum. Unnið er áfram markvisst með niðurstöður verkefnisins árið 2026.
Árið einkenndist af áframhaldandi stafrænni umbreytingu, aukinni samþættingu kerfa og nánu samstarfi við samstarfsaðila. Verkefnin hafa skilað einfaldari verkferlum, betri yfirsýn og auknu aðgengi að þjónustu fyrir bæði starfsfólk og borgarbúa. Þessar framfarir leggja traustan grunn að áframhaldandi þróun í átt að skilvirkari og notendamiðaðri þjónustu.