Frá vegferð til veruleika

Ársskýrsla þjónustu- og nýsköpunarsviðs 2025

Reykjavík í alþjóðlegu samtali um stafræna umbreytingu

Við hittum Örnu Ýr Sævarsdóttur og Ingu Rós Gunnarsdóttur og ræddum alþjóðlega þátttöku þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Á árinu tók sviðið virkan þátt í fjölmörgum alþjóðlegum ráðstefnum og samstarfsverkefnum þar sem reynsla Reykjavíkurborgar af stafrænni umbreytingu var kynnt og rædd.

Inga Rós og Arna Ýr kynntu meðal annars starf borgarinnar fyrir fyrsta hópi Bloomberg LSE European City Leadership Initiative í Berlín, þar sem þær sögðu frá því hvernig samspil gagna og þjónustuhönnunar birtist í okkar starfi. Þessir tveir þættir styðja hvor annan í skapandi og stefnumarkandi þróun: gögn leiða okkur á nýja staði og opna á möguleika sem annars hefðu ekki komið fram, á meðan þjónustuhönnunin sjálf varpar ljósi á nýjar þarfir og spurningar sem gefa tilefni til frekari gagnaöflunar.

Inga Rós Gunnarsdótti og Arna Ýr Sævarsdóttir
Inga Rós Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri gagna- og hugbúnaðarþróunar og Arna Ýr Sævarsdóttir, skrifstofustjóri þjónustu og umbreytingar


Sviðið tók einnig þátt í Smart City Expo World Congress í Barcelona, einni stærstu ráðstefnu heims um snjallborgir, þar sem Inga Rós var fulltrúi Reykjavíkurborgar og sat í pallborði á vegum UN-Habitat um nýtingu stafrænnar nýsköpunar til að bæta aðgengi að húsnæði og þjónustu. Samhliða því tóku pólitískir fulltrúar og starfsfólk þátt í samstarfi innan Cities Coalition for Digital Rights (CC4DR) á sömu ráðstefnu. Fjallað var um það hvernig borgir vinna saman að því að tryggja vernd stafrænna réttinda, persónuvernd, jafnræði og lýðræðislega ábyrgð í stafrænum lausnum.

Auk þess sóttu fulltrúar sviðsins meðal annars Data 2030 Summit í Stokkhólmi, CDO Europe Exchange í München, Public Innovation Summit í Baltimore á vegum Public Innovation Network og málþing um þjónustuhönnun í Malmö, þar sem Arna Ýr miðlaði reynslu Reykjavíkurborgar að því að beita þjónustuhönnun með börn í forgrunni, meðal annars í gegnum verkefnið Betri borg fyrir börn (BBB). Áhersla var lögð á að sýna hvernig markviss þjónustuhönnun, sem byggir á raunverulegum þörfum barna, getur leitt til betri ákvarðana og vandaðri þróunar þjónustu.

Getið þið sagt frá þátttöku ykkar í alþjóðlegum viðburðum?

Við tókum þátt í fjölda alþjóðlegra viðburða, meðal annars í Stokkhólmi og München þar sem umræður snerust um gervigreind í opinberri þjónustu, og í Barcelona á ráðstefnu UN-Habitat. Þá sóttum við ráðstefnur í Malmö og Baltimore þar sem áhersla var á þjónustuhönnun, sérstaklega með aðkomu ungs fólks. Markmiðið var bæði að miðla okkar reynslu og jafnvel læra af öðrum borgum.

Við finnum að vinnan sem við höfum lagt í síðustu ár er farin að skila sér og að við erum orðin fyrirmynd fyrir aðrar borgir.

Hvaða skilaboð lögðuð þið áherslu á?

Við höfum lagt ríka áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun og hvernig við setjum börn í forgrunn, meðal annars í gegnum verkefni eins og Betri borg fyrir börn. Stafræna afurðin er eitt en okkar ferli hefur vakið athygli um allan heim. Við erum mikið beðin um að deila þessari sögu,  þ.e. hvernig þú tekur svona stóra stjórnsýslubreytinu á grundvelli barns. Við höfum einnig fjallað um samspil gagna og þjónustuhönnunar – hvernig nýting gagna hjálpar okkur að taka betri ákvarðanir og bæta þjónustu.

Hvernig  hafa viðbrögðin verið?

Viðbrögðin hafa verið mjög jákvæð. Fólk verður oft hissa á því hversu langt Reykjavík er komin. Við finnum að vinnan sem við höfum lagt í síðustu ár er farin að skila sér og að við erum orðin fyrirmynd fyrir aðrar borgir.

Við leggjum áherslu á að byggja á náinni tengingu við þjónustuna og notendurna.

Hvernig stendur Reykjavík í alþjóðlegum samanburði?

Við erum mjög framarlega og á sumum sviðum leiðandi. Það sem vekur sérstaka athygli er heildræna nálgunin, ekki bara tæknin sjálf heldur hvernig við vinnum breytingar í stjórnsýslunni með notendur í forgrunni.

Hvað einkennir umræðuna um stafræna umbreytingu á þessum vettvangi?

Við sjáum oft að tengsl milli þeirra sem leiða stafræna umbreytingu og raunverulegrar þjónustu eru ekki nægilega sterk. Þar liggur styrkur okkar.  Við leggjum áherslu á að byggja á náinni tengingu við þjónustuna og notendurna.

Það undirstrikar að okkar vinna er hluti af stærra samhengi og að reynsla Reykjavíkurborgar á þessu sviði á erindi í breiðara faglegt samtal.

Hver er helsti lærdómurinn af þátttöku á ráðstefnum og viðburðum um heiminn?

Helsti lærdómurinn af þátttöku í alþjóðlegum ráðstefnum og viðburðum er sá að hún hefur styrkt okkur enn frekar í þeirri sannfæringu að við séum á réttri leið. Við höfum byggt upp traustan grunn á undanförnum árum og erum nú farin að starfa í samræmi við þá stefnu og þær aðferðir sem við settum okkur að markmiði. Jákvæð og áhugasöm viðbrögð á þessum vettvangi hafa jafnframt aukið stoltið af því sem hefur áunnist innan þjónustu- og nýsköpunarsviðs.

Þá höfum við einnig upplifað að þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir eru að mörgu leyti þær sömu og stærri borgir og alþjóðleg fyrirtæki glíma við. Það undirstrikar að okkar vinna er hluti af stærra samhengi og að reynsla Reykjavíkurborgar á þessu sviði á erindi í breiðara faglegt samtal. 

Hvers vegna skiptir alþjóðlegt samstarf máli?

Með samstarfi við aðrar borgir getum við miðlað reynslu, lært af öðrum og þróað betri lausnir sem tryggja réttindi og bætta þjónustu fyrir íbúa.