Hringrásargarður á Álfsnesi - verðfyrirspurn vegna fýsileikagreiningar
Reykjavíkurborg ásamt samstarfsaðilum vill kanna tækifærin sem felast í að stuðla að þróun iðnaðarvistkerfis í hringrásariðngarði á Álfsnesi. Verkefnið sem hér um ræðir felst í gerð fýsileikagreiningar, mati á forsendum og tillögum um uppbyggingu á hringrásargarði.
- Óskað er eftir tilboði í fýsileikagreiningu fyrir hringrásargarð á Álfsnesi frá teymum með fjölbreytta reynslu og þekkingu.
Fýsileikagreining
Fýsileikagreiningin felur meðal annars í sér að:
- Kortleggja samlífi fyrirtækja út frá auðlindastraumum.
- Lýsa mögulegu eignarhaldi og rekstrarfyrirkomulagi auðlindagarðs.
- Lýsa hvaða samgöngur og innviði þyrfti á svæðinu og gróft kostnaðarmat á þeim.
- Skilgreina kvaðir og/eða skyldur sem settar yrðu á fyrirtæki á svæðinu.
- Greina viðskiptatækifæri og áhættuþætti svo uppbygging gangi eftir.
Verðfyrirspurn
-
Verðfyrirspurnargögn eru eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá 20. febrúar 2023
-
Frestur til umsóknar er til kl. 10 þann 7. mars 2023.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti á útboðsvef Reykjavíkurborgar. Sjá má niðurstöðu í fundargerð opnunarfundar.