Tré felld í Öskjuhlíð vegna flugöryggis

Umhverfi

""

Á tilteknu flugöryggissvæði yfir Öskjuhlíð þarf að fella hæstu trén. Trén verða felld á næstu vikum en nýr trjágróður verði gróðursettur í stað trjánna sem felld verða. Trjástofnarnir verða notaðir í byggingu hofs Ásatrúarsafnaðarins.

Trén verða felld því þau hafa vaxið upp í hindrunarflöt á flugbraut 13/31 samkvæmt áhættumati Isavia og samkomulagi um innanlandsflug frá 25. október árið 2013.

Samkvæmt greiningu sem gerð var þarf að fella um 130 grenitré. Skógurinn er ekki eingöngu vaxinn greni en fella þarf hæstu grenitrén á því svæði sem um ræðir. Annar lægri trjágróður verður eftir.

Öllu raski í Öskjuhlíðinni verður  haldið í lágmarki og umferð tækja verður takmörkuð eins og hægt er. Gætt verður sérstaklega að öryggi gesta bæði á meðan verki stendur og eftir vinnutíma.

ISAVIA ræður verktaka sem fellir trén, fjarlægir þau og kurlar hluta af þeim en Reykjavíkurborg mun hafa eftirlit með verkinu. Áætluð verklok eru um miðjan mars.

Trjástofnarnir verða notaðir í byggingu hofs Ásatrúarsafnaðarins sem mun rísa í Öskjuhlíð skammt frá vinnusvæðinu og kurlið verður nýtt í stígagerð eða á gróðursvæði í borginni.

Tengill

Greining