Okkar mál fær viðurkenninguna Orðsporið 2014

Velferð Skóli og frístund

""

Dagur leikskólans er haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn í dag og halda leikskólar upp á daginn með ýmsum hætti. Í tilefni dagsins veitti kynningarnefnd Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla viðurkenningu sem nefnist Orðsporið til þeirra sem hafa þótt skara fram úr og unnið ötullega í þágu leikskóla og/eða  leikskólabarna. Jón Gnarr borgarstjóri afhenti viðurkenninguna og  Orðsporið 2014 hlýtur að þessu sinni verkefnið Okkar mál.

 

Leikskólar landsins halda upp á daginn með ýmsum hætti til að vekja athygli á starfi leikskólakennara og til að kynna starfsemi leikskóla út á við. Ástæðan fyrir því að 6. febrúar er dagur leikskólans er sú að þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Í tilefni dagsins veitir kynningarnefnd Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla viðurkenningu sem nefnist Orðsporið til þeirra sem hafa þótt skara fram úr og unnið ötullega í þágu leikskóla og/eða  leikskólabarna. Félagsmenn sendu inn tilnefningar til viðurkenningarinnar til sérstakrar valnefndar. Hægt var að tilnefna einstakan leikskólakennara, kennarahóp, verkefni, leikskóla, leikskólastjóra, stefnumótun, skipulag, foreldrasamstarf, sérkennslu, forvarnir, sveitarfélag eða annað sem vel hefur verið gert.

Viðurkenninguna Orðsporið 2014 hlýtur að þessu sinni verkefnið Okkar mál. Afhendingin fór fram við hátíðlega athöfn í Hannesarholti og afhenti Jón Gnarr borgarstjóri fulltrúum verkefnisins viðurkenninguna.

Meginmarkmið verkefnisins Okkar mál er að auka samstarf skóla í Fellahverfi og stofnana í Breiðholti með það að leiðarljósi að efla félagslegan jöfnuð, námsárangur og vellíðan barna í hverfinu. Í því felst meðal annars:

að auka þekkingu kennara og starfsfólks á þáttum sem hafa áhrif á máltöku og læsi allra barna með sérstakri áherslu á börn með annað móðurmál en íslensku
að efla fagleg vinnubrögð og færni kennara í starfi með margbreytilegum barna- og foreldrahópi
að þróa og innleiða fjölbreyttar kennsluaðferðir sem miða að því að jafna tækifæri barna til náms
að afrakstri verkefnisins verði miðlað á fjölbreyttan hátt til annarra er gagn hafa af

Samstarfsaðilar í Okkar mál verkefninu eru Fellaskóli, Leikskólinn Holt, Leikskólinn Ösp, Miðberg, Rannsóknarstofa um þroska, mál og læsi – Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur og Þjónustumiðstöð Breiðholts.

Nánar um Okkar mál má nálgast á heimasíðunni