Nýtt hjúkrunarheimili, þjónustumiðstöð og leiguíbúðir fyrir aldraða við Sléttuveg
Framkvæmdir Mannlíf
Í dag skrifuðu Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, undir samninga og viljayfirlýsingu um byggingu og rekstur nýs hjúkrunarheimilis, þjónustumiðstöðvar og leiguíbúða fyrir aldraða við Sléttuveg í Fossvogsdal. Fyrirkomulag verður svipað því sem er í dag hjá Hrafnistu við Laugarás í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði.
Byggingarframkvæmdir hefjast seinni hluta þessa árs og er gert ráð fyrir að þeim verði lokið 2019. Í fyrsta áfanga verður nýtt hjúkrunarheimili byggt og í beinu framhaldi hefjast framkvæmdir við þjónustumiðstöð og leiguíbúðir.
Rúmgóð einstaklingsrými fyrir 99 íbúa
Á hjúkrunarheimili Hrafnistu verða rúmgóð einstaklingsrými fyrir 99 íbúa ásamt setustofum, matsal og aðstöðu þar sem innangengt verður í þjónustumiðstöðina. Gert er ráð fyrir að heimilið taki til starfa á seinni hluta árs 2019. Reykjavíkurborg og ríkið gerðu í nóvember með sér samning um byggingu hjúkrunarheimilis við Sléttuveg sem Reykjavíkurborg mun reisa í samvinnu við ríkið. Borgin hefur nú ritað undir viljayfirlýsingu við Sjómannadagsráð, eiganda Hrafnistuheimilanna, um rekstur hjúkrunarheimilisins. Við hönnun og útfærslu heimilisins verður unnið í nánu samstarfi við velferðarsvið borgarinnar en við byggingu þess verður fylgt reglum velferðarráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila. Jafnframt er stefnt að því að nýta á sem bestan hátt þá áratugalöngu þekkingu og reynslu sem Hrafnista hefur af víðtækri þjónustu við aldraða.
Fjölbreytt og mikil þjónusta
Í samningnum sem undirritaður var í dag gætir m.a. þeirrar nýbreytni að Sjómannadagsráð mun byggja, eiga og reka fyrirhugaða þjónustumiðstöð sem samtengd verður Hrafnistuheimilinu og þremur nýjum fjölbýlishúsum með leiguíbúðum Naustavarar, sem einnig er í eigu Sjómannadagsráðs. Hrafnista mun bjóða öldruðum margvíslega þjónustu eins og þá sem veitt er á öðrum Hrafnistuheimilum en einnig ýmsa aðra sem veitt verður í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar í sjálfri þjónustumiðstöðinni. Þar á meðal verður matarþjónusta, afþreying, tómstundir, heilsurækt, útivist og opið félagsstarf eins og Reykjavíkurborg veitir í þjónustumiðstöðvum sínum í borginni ásamt þjónustu fótaaðgerðasérfræðinga og hárgreiðslumeistara.
Leiguíbúðir njóta nálægðar við hjúkrunarheimili
Síðar á árinu munu framkvæmdir við byggingu fjölbýlishúss með leiguíbúðunum hefjast við hlið fyrirhugaðrar þjónustumiðstöðvar við Sléttuveg og á byggingarreit við Skógarveg. Í húsunum verða u.þ.b. 125 leiguíbúðir sem leigðar verða öldruðum. Meirihluti íbúðanna verður frá 50-70 fermetrar, en einnig verða byggðar 70-85 fermetra hjónaíbúðir og nokkrar 90 fermetra íbúðir eða stærri. Í starfsemi leiguíbúðanna er lögð höfuðáhersla á nálægð við hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð þar sem aldraðir hafa aðgang að fjölbreyttri þjónustu, þar á meðal sérhæfðri þjónustu í samræmi við einstaklingsbundna þörf.
Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, segir að ráðið hafi rutt brautina hvað þessa áherslu varðar á íbúðaleigumarkaði fyrir aldraða hér á landi. Markmiðið sé að þeim sem kjósa að búa á eigin vegum sé gert það kleift í öruggu umhverfi sem lagað er að mismunandi þörfum aldurshópsins. Eins og í öðrum hverfum þar sem Sjómannadagsráð leigir eldri borgurum sérhæfðar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu verður m.a. starfrækt húsvarsla allan sólarhringinn í húsum félagsins við Sléttuveg. Meginmarkmiðið að sögn Guðmundar er að bjóða íbúunum alhliða þjónustu í samræmi við þarfir hvers og eins þar sem þjónustan fylgir einstaklingum eins og stuðningur við hann krefst hverju sinni.
Uppbygging fyrir eldri borgara á Sléttuvegi
Við Sléttuveg í Reykjavík hefur á undanförnum árum átt sér stað uppbygging íbúða fyrir eldri borgara. Með samsetningu þeirrar uppbyggingar sem nú er fyrirhuguð og staðfest var í dag bjóðast eldri borgurum fleiri valkostir. Sléttuvegur er afar skjólsælt hverfi með góðu útsýni og góðu aðgengi að göngustígum í miðju Reykjavíkurborgar.